Gratíneraður fiskur með hrísgrjónum



Ofnbakaður fiskur með grænmeti

Ofnbakaðir fiskréttir eru að mínu mati mesta snilld. Þá er hægt að ganga frá öllu, leggja á borð og gera huggulegt á meðan hann bakast í ofninum. Ég er oft með hrísgrjón með ofnbökuðum fiski en ég hef ekki áður sett þau í botninn á fatinu líkt og hér. Ég gerði kjúklingarétt í bókinni minni með þessum hætti sem tókst mjög vel og ákvað að prófa þetta með fiskinn líka og mikið sem þetta var gott!

Ofnbakaður fiskur

Gratíneraður fiskur með hrísgrjónum uppskrift

Fyrir 5-6 manns

  • 250 g hrísgrjón (soðin)
  • 900 g þorskhnakki
  • ½ blaðlaukur
  • ½ blómkálshaus
  • ½ brokkolihaus
  • 1 x piparostur
  • 500 ml rjómi frá Gott í matinn
  • 2 tsk. karrý
  • 2 tsk. söxuð steinselja
  • Salt, pipar og hvítlauksduft
  • Pizzaostur frá Gott í matinn
  • Ólífuolía og smjör
  1. Hitið ofninn í 180°C.
  2. Smyrjið eldfast mót (um 30×40 cm) með smjöri og dreifið úr hrísgrjónunum.
  3. Skolið, þerrið og skerið þorskinn í bita og raðið yfir hrísgrjónin, kryddið með salti og pipar.
  4. Skerið brokkoli, blómkál og blaðlauk niður, steikið upp úr vel af ólífuolíu og kryddið eftir smekk. Steikið þar til grænmetið fer aðeins að mýkjast og dreifið þá úr því yfir fiskinn í fatinu.
  5. Hellið um helming rjómans á pönnuna og rífið niður piparostinn. Hrærið þar til osturinn er bráðinn og smakkið til með karrý, steinselju og öðrum kryddum. Þegar osturinn er bráðinn má setja restina af rjómanum út á pönnuna og leyfa aðeins að malla.
  6. Hellið sósunni þá yfir fiskinn, setjið vel af rifnum pizzaosti yfir allt saman og bakið í um 30 mínútur.
  7. Gott er að bera fiskréttinn fram með nýbökuðu rúgbrauði og nóg af smjöri.
Bakaður fiskur í ofni með rifnum osti

Þessi fiskréttur er klárlega kominn á TOPP 10 listann!

Ofnbakaður fiskur með brokkoli og osti og hrísgrjónum

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun