
Nú segi ég bara OMG! Ég var að prófa að nota vegan soyahakk í fyrsta skipti og eruð þið að grínast hvað það er mikil snilld! Aldrei hefði ég trúað því að það væri svona bragðgott og gott að vinna með. Ég ákvað að segja engum í fjölskyldunni frá þessu áður en kallað var „gjörið þið svo vel“og enginn þeirra áttaði sig á því að það væri ekkert nautakjöt í réttinum fyrr en ég sagði þeim það. Þeim fannst þetta öllum bara svakalega gott og því er þetta snilld fyrir þá sem vilja minnka neyslu dýraafurða á heimilinu.

Kjötlaust „Spaghetti Bolognese“ uppskrift
- 1 pakki Hälsans Kök hakk
- 1 laukur (saxaður)
- 3 gulrætur (skornar í strimla)
- 2 hvítlaukrif (söxuð)
- 1 dós/krukka tilbúin pastasósa (um 350-400 g)
- 1 msk. oregano krydd
- Salt, pipar og chilipipar
- Ólífuolía til steikingar
- Soðið spagettí, basilíka og parmesan ostur (meðlæti)
- Steikið lauk, gulrætur og hvítlauk upp úr ólífuolíu þar til mýkist, kryddið til eftir smekk.
- Bætið frosnu hakkinu saman við, aðeins meiri olíu og steikið áfram við meðalhita í um 6-8 mínútur.
- Hellið þá pastasósunni yfir og kryddið sósuna til eftir smekk.
- Berið fram með soðnu spagettí, ferskri basilíku og rifnum parmesanosti.

Soyahakkið er laust í sér og hægt að nota það frosið, beint úr pokanum og því er sniðugt að eiga það í frysti og grípa til þegar maður vill útbúa einfaldan og fljótlegan kvöldverð. Eldamennskan tók í raun aðeins þann tíma sem það tók að sjóða spagettíið því allt annað var klárt á meðan.
