Vatnsdeigslengjur með kaffirjóma



⌑ Samstarf ⌑
Bolludagurinn bolluuppskrift

Nú skulið þið halda ykkur fast því þessar bollur voru GUÐDÓMLEGAR!

Ég var búin að gleyma hversu brjálæðislega gott Toffifee nammið er! Þegar ég var krakki keypti amma Guðrún alltaf svona handa mér og ég skil ekki af hverju ég hef ekki sett þetta oftar á innkaupalistann, enda hef ég varla borðað annað alla vikuna en Toffifee í eftirrétt eftir allar máltíðir, hahaha!

Vatnsdeigsbollur í lengjum með súkkulaði og rjóma

Ég var síðan í smá tilraunastarfsemi með að gera kaffirjóma og namm hvað hann var góður og þetta passaði bara allt svo hrikalega vel saman!

Vatnsdeigsbollur með kaffirjóma og súkkulaðiglassúr

Vatnsdeigslengjur með kaffirjóma

Vatnsdeigslengjur uppskrift

15-18 lengjur

  • 180 g smjör
  • 360 ml vatn
  • 200 g hveiti
  • 1 tsk. lyftiduft
  • ¼ tsk. salt
  • 3-4 egg (160 g)
  1. Hitið ofninn í 180°C.
  2. Hrærið saman hveiti, lyftidufti og salti í skál og geymið.
  3. Hitið saman vatn og smjör í potti þar til smjörið er bráðið og blandan vel heit og takið þá af hellunni.
  4. Hellið hveitiblöndunni saman við smjörblönduna og hrærið/vefjið saman við með sleif þar til allir kekkir eru horfnir og blandan losnar auðveldlega frá köntum pottsins.
  5. Flytjið blönduna yfir í hrærivélarskálina og hrærið á lægsta hraða með K-inu og leyfið hitanum þannig að rjúka aðeins úr blöndunni.
  6. Pískið eggin saman í skál og setjið þau saman við í litlum skömmtum og skafið niður á milli. Best er að vigta blönduna því egg eru misstór og nota aðeins 160 g henni til þess að deigið verði ekki of þunnt.
  7. Setjið deigið í sprautupoka með um 1,5 cm breiðum stút og sprautið um 15 cm lengjur á bökunarpappír með gott bil á milli. Athugið að þær munu stækka og breikka alveg um helming í ofninum svo ekki hafa áhyggjur þó þær virðist „mjóar og langar“ þegar þið sprautið þeim á.
  8. Bakið í 27-30 mínútur, lengjurnar eiga að vera orðnar vel gylltar og botninn líka, ekki opna þó ofninn fyrr en í fyrsta lagi eftir 25 mínútur til að kíkja undir eina.

Fylling

  • 600 ml rjómi
  • 2 msk. flórsykur
  • 15 g fínmalað instant kaffiduft
  • 125 g saxað Toffifee (1 pakki)
  1. Þeytið saman rjóma, flórsykur og instant kaffiduft.
  2. Vefjið söxuðu Toffifee saman við og fyllið lengjurnar með kaffirjóma.

Súkkulaðiglassúr og skraut

  • 100 g brætt smjör
  • 210 g flórsykur
  • 2 msk. Cadbury bökunarkakó
  • 2 tsk. vanilludropar
  • 3 msk. uppáhellt kaffi
  • Toffifee (15-18 stk)
  1. Hrærið saman brætt smjör, flórsykur, bökunarkakó, vanilludropa og kaffi þar til slétt og falleg súkkulaðibráð hefur myndast.
  2. Smyrjið súkkulaðiglassúr á lengjurnar og skreytið með Toffifee og brúðarslöri.
Vatnsdeigsbollur með Toffifee súkkulaði

Nostalgían hefur verið í algjöru hámarki hjá mér með þetta nammi í vikunni. Þessar bollur…eða öllu heldur lengjur eru bara eitthvað sem allir verða að prófa með þessari fyllingu!

Vatnsdeigsbollur með súkkulaði

Kaffiduftið fékk ég í Hagkaup frá Nescafé, nokkur lítil bréf í einum kassa, notaði eitt bréf í rjómann.

Bolludagsbollur uppskrift

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun