
Ég man alltaf eftir því að mamma eldaði þessa lauksúpu þegar ég var barn. Ég get ekki sagt að ég hafi verið hrifin af henni á þeim tíma en man alltaf hvað mamma dásamaði þessa súpu og gerir enn. Ég fékk því hjá henni uppskriftina og setti minn brag aðeins á hana eins og gerist þegar maður er að prófa sig áfram með eitthvað í fyrsta skipti í eldhúsinu. Þessi súpa lukkaðist svona líka vel og er hinn fullkomni forréttur eða létt máltíð á undan frekari snarli eða kræsingum með góðum gestum.

Lauksúpa uppskrift
Uppskrift dugar í 4-6 litlar skálar (eftir stærð)
- 50 g smjör
- 4 meðalstórir laukar
- 2 hvítlauksrif
- 1 lárviðarlauf
- 4 greinar af fersku timian
- 120 ml rauðvín
- 2 msk. hveiti
- 800 ml nautasoð
- ½ hvítt snittubrauð
- Ólífuolía
- Rifinn ostur
- Salt, pipar og hvítlauksduft
- Skerið laukinn í þunnar sneiðar, rífið niður hvítlaukinn og steikið báða upp úr smjöri á meðalháum hita ásamt lárviðarlaufi og timian.
- Hrærið reglulega í lauknum og kryddið með salti og pipar, leyfið lauknum að malla í að minnsta kosti 15 mínútur eða þar til hann verður vel mjúkur og fer að karamellíserast.
- Hellið þá rauðvíninu saman við og leyfið suðunni að koma upp að nýju, lækkið aftur hitann og hrærið reglulega þar til rauðvínið hefur að mestu gufað upp.
- Stráið því næst hveiti yfir rauðvínsleginn laukinn og blandið saman, hellið síðan nautasoðinu yfir, hækkið aftur hitann að suðu og leyfið síðan að malla við lágan hita í að minnsta kosti 15 mínútur áður en þið hitið í litlum skálum.
- Skerið á meðan snittubrauð í um 1 sm þykkar sneiðar, raðið á bökunarplötu, hellið smá ólífuolíu yfir brauðið og kryddið með hvítlauksdufti og salti. Ristið við 200° í um 10 mínútur eða þar til brauðið er stökkt eins og brauðteningur.
- Lækkið hitann þá niður í 175°, skiptið súpunni niður í 4-6 skálar, leggið brauð ofan á og stráið osti yfir brauðið, bakið í ofni í 10-15 mínútur eða þar til osturinn fer að gyllast.
- Það er einnig hægt að malla lauksúpuna með smá fyrirvara og síðan setja brauð og ost yfir síðar og hita hana þá.

Mmmm þessi súpa er svo góð og ekki skemmir fyrir að bera hana fram í svona litlum undurfallegum pottum.
