Toblerone bollur



⌑ Samstarf ⌑
Toblerone fylling í bollur

Bollugleðin heldur áfram! Í dag er akkúrat vika í einn skemmtilegasta dag ársins, sjálfan Bolludaginn! Það er svo gaman að halda í hefðir og fá sér bollu, eða tvær…..jafnvel þrjár eða fjórar!

Vatnsdeigsbollur með Toblerone

Hér er ég búin að fylla vatnsdeigsbollur með Toblerone súkkulaði og bláberjum og það er hreinlega þannig að allar uppskriftir sem innihalda Toblerone eru góðar!

Toblerone og vatnsdeigsbollur

Toblerone bollur

Vatnsdeigsbollur uppskrift

15-18 stykki

  • 180 g smjör
  • 360 ml vatn
  • 200 g hveiti
  • 1 tsk. lyftiduft
  • ¼ tsk. salt
  • 3-4 egg (160 g)
  1. Hitið ofninn í 180°C.
  2. Hrærið saman hveiti, lyftidufti og salti í skál og geymið.
  3. Hitið saman vatn og smjör í potti þar til smjörið er bráðið og blandan vel heit og takið þá af hellunni.
  4. Hellið hveitiblöndunni saman við smjörblönduna og hrærið/vefjið saman við með sleif þar til allir kekkir eru horfnir og blandan losnar auðveldlega frá köntum pottsins.
  5. Flytjið blönduna yfir í hrærivélarskálina og hrærið á lægsta hraða með K-inu og leyfið hitanum þannig að rjúka aðeins úr blöndunni.
  6. Pískið eggin saman í skál og setjið þau saman við í litlum skömmtum og skafið niður á milli. Best er að vigta blönduna því egg eru misstór og nota aðeins 160 g henni til þess að deigið verði ekki of þunnt.
  7. Setjið bökunarpappír á ofnplötur og hver bolla má vera um 2 matskeiðar af deigi (ein vel kúpt matskeið). 
  8. Bakið í 27-30 mínútur, bollurnar eiga að vera orðnar vel gylltar og botninn líka, ekki opna þó ofninn fyrr en í fyrsta lagi eftir 25 mínútur til að kíkja undir eina. Helstu mistök sem fólk gerir er að baka bollurnar ekki nógu lengi og þá falla þær.

Toblerone fylling

  • 600 ml þeyttur rjómi
  • 300 g bláber
  • 120 g saxað Toblerone
  1. Vefjið bláberjum og Toblerone saman við þeytta rjómann og setjið á bollurnar.

Súkkulaðiglassúr og skraut

  • 100 g brætt smjör
  • 210 g flórsykur
  • 2 msk. Cadbury bökunarkakó
  • 2 tsk. vanilludropar
  • 3 msk. uppáhellt kaffi
  • Bláber
  • Saxað Toblerone
  1. Hrærið saman brætt smjör, flórsykur, bökunarkakó og vanilludropa þar til slétt og falleg súkkulaðibráð hefur myndast.
  2. Smyrjið á bollurnar og skreytið með söxuðu Toblerone og bláberjum.
Toblerone súkkulaði í bollum

Það er ferskt og gott að bæta bláberjum saman við rjómann og þið mættuð jafnvel stappa þau ef þið viljið finna minna fyrir þeim en samt fá berjakeiminn í rjómann.

Bolludagsbollur

Mmmmm…….

Bollukaffi með Toblerone bollum

BOLLA, BOLLA, BOLLA……

Vatnsdeigsbollur á Bolludaginn

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun