Vatnsdeigsbollukaka með hindberjafyllingu og lakkrís



⌑ Samstarf ⌑
Bolluhringur með hindberjarjóma og lakkrísbráð

B O B A er eina orðið sem lýsir þessari vatnsdeigsbolluköku!

Bolludagsbollukaka með lakkrís

Það hafa margir verið að útbúa bolluhringi núna undanfarið og ég mátti til með að taka þátt í slíkum tilraunum og útkoman varð svona líka ofboðslega girnileg og góð!

Bolluhringur eða bollukaka

Hindber og lakkrís eru auðvitað hin fullkomna blanda þegar kemur að sætindum svo nú skulið þið halda ykkur fast því þessa verðið þið að prófa!

Stór vatnsdeigskaka eða vatnsdeigsbolla

Vatnsdeigsbollukaka með hindberjafyllingu og lakkrísbráð

Vatnsdeigshringur uppskrift

  • 180 g smjör
  • 360 ml vatn
  • 200 g hveiti
  • 1 tsk. lyftiduft
  • ¼ tsk. salt
  • 3-4 egg (160 g)
  1. Hitið ofninn í 180°C.
  2. Hrærið saman hveiti, lyftidufti og salti í skál og geymið.
  3. Hitið saman vatn og smjör í potti þar til smjörið er bráðið og blandan vel heit (gott að leyfa að sjóða í að minnsta kosti eina mínútu) og takið þá af hellunni.
  4. Hellið hveitiblöndunni saman við smjörblönduna og hrærið/vefjið saman við með sleif þar til allir kekkir eru horfnir og blandan losnar auðveldlega frá köntum pottsins.
  5. Flytjið blönduna yfir í hrærivélarskálina og hrærið á lægsta hraða með K-inu og leyfið hitanum þannig að rjúka aðeins úr blöndunni.
  6. Pískið á meðan eggin saman í skál og setjið þau saman við í litlum skömmtum og skafið niður á milli. Best er að vigta blönduna því egg eru misstór og nota aðeins 160 g henni til þess að deigið verði ekki of þunnt.
  7. Setjið bökunarpappír á ofnplötu, teiknið stóran hring á miðjuna (t.d með matardisk). Teiknið síðan annan lítinn hring inn í hann (t.d með morgunverðarskál).
  8. Setjið bolludeigið í sprautupoka og klippið stórt gat á endann (um 5 cm) og sprautið í hring á milli hringjanna sem þið teiknuðuð (athugið að deigið mun lyfta sér um að minnsta kosti helming á alla kanta).
  9. Bakið í 50-60 mínútur eða þar til toppurinn og botninn er orðinn vel gylltur. Ekki opna þó ofninn fyrr en í fyrsta lagi eftir 40 mínútur til að kíkja undir. Helstu mistök sem fólk gerir er að baka vatnsdeig ekki nógu lengi og þá fellur það frekar.
  10. Kælið bollukökuna og skerið hana síðan í sundur áður en þið fyllið hana.

Hindberjafylling

  • 700 ml rjómi
  • 2 msk. flórsykur
  • 1 krukka hindberjasulta frá St.Dalfour (284g)
  • 250 g Þristur (smátt niðurskorinn)
  • Fersk hindber
  1. Þeytið saman rjóma og flórsykur þar til rjóminn er stífþeyttur.
  2. Blandið sultunni og Þristinum varlega saman við með sleif þar til bleikur og fallegur hindberjarjómi hefur myndast.
  3. Sprautið eða smyrjið á milli, raðið hindberjum hér og þar í rjómann og setjið efri hlutann ofan á.

Lakkrísbráð og skraut

  • 300 g Bingókúlur
  • 80 ml rjómi
  • Fersk blóm
  1. Bræðið kúlur og rjóma saman í potti við vægan hita þar til kekkjalaus lakkrísbráð hefur myndast.
  2. Kælið þar til lakkrísbráðin fer að þykkna (hrærið reglulega í henni til að finna áferðina) og smyrjið henni þá yfir bollukökuna.
  3. Skreytið að lokum með ferskum blómum.
Hindberjarjómi með St.Dalfour hindberjasultu

Það er guðdómlegt að blanda hindberjasultunni saman við rjómann! Bragðið verður svo létt og ferskt og passar undurvel með lakkrísbráðinni.

Vatnsdeigsbollluhringur eða vatnsdeigsbolluakaka

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun