Daim bollur með jarðarberjarjóma



⌑ Samstarf ⌑
Bolludagsbollur uppskrift

Nú er Bolludagurinn á morgun og ég er heldur betur búin að BOLLA yfir mig þetta árið! Enda er erfitt að hemja sig þegar kemur að góðum fyllingum og nýjum hugmyndum. Hér kemur síðasta bollusamsetningin fyrir bloggið en þessi undursamlega bolla var á forsíðunni á Bollubæklingi Hagkaups sem þið getið skoðað hér fyrir neðan.

Það var gaman að fá að útbúa nokkrar uppskriftir í þennan flotta bækling og mæli ég með því að þið kíkið á hann fyrir fleiri gómsætar uppskriftir frá frábærum bloggurum.

Vatnsdeigsbollur með bleikum glassúr

Þessar voru dásamlegar! Ég elska jarðarberjarjóma svo þessar voru einar af mínum uppáhalds. Síðan kom virkilega vel út að útbúa mjúkan ganaché í stað glassúrs.

Vatnsdeigsbollur með jarðarberjarjóma og bleiku súkkulaði

Daim bollur með jarðarberjarjóma

Vatnsdeigsbollur uppskrift

15-18 stykki

  • 180 g smjör
  • 360 ml vatn
  • 200 g hveiti
  • 1 tsk. lyftiduft
  • ¼ tsk. salt
  • 3-4 egg (160 g)
  1. Hitið ofninn í 180°C.
  2. Hrærið saman hveiti, lyftidufti og salti í skál og geymið.
  3. Hitið saman vatn og smjör í potti þar til smjörið er bráðið og blandan vel heit (leyfið að sjóða í um eina mínútu) og takið þá af hellunni.
  4. Hellið hveitiblöndunni saman við smjörblönduna og hrærið/vefjið saman við með sleif þar til allir kekkir eru horfnir og blandan losnar auðveldlega frá köntum pottsins.
  5. Flytjið blönduna yfir í hrærivélarskálina og hrærið á lægsta hraða með K-inu og leyfið hitanum þannig að rjúka aðeins úr blöndunni.
  6. Pískið eggin saman í skál og setjið þau saman við í litlum skömmtum og skafið niður á milli. Best er að vigta blönduna því egg eru misstór og nota aðeins 160 g henni til þess að deigið verði ekki of þunnt.
  7. Setjið bökunarpappír á ofnplötur og hver bolla má vera um 2 matskeiðar af deigi (ein vel kúpt matskeið). 
  8. Bakið í 27-30 mínútur, bollurnar eiga að vera orðnar vel gylltar og botninn líka, ekki opna þó ofninn fyrr en í fyrsta lagi eftir 25 mínútur til að kíkja undir eina. Helstu mistök sem fólk gerir er að baka bollurnar ekki nógu lengi og þá geta þær fallið.
Daim í vatnsdeigsbollur er góð blanda

Mmmmm…..

Vatnsdeigsbollur uppskrift

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun