Oreoterta meistarans



⌑ Samstarf ⌑

Þessi undursamlega kaka er ein mín uppáhalds úr bókinni minni Saumaklúbburinn. Hún er alveg hrikalega góð og síðan þykir mér mikið vænt um blaðsíðurnar hennar í bókinni því þær voru þær fyrstu sem ég lærði að vinna í Indesign. Ég semsagt notaði þessa uppskrift og myndir sem æfingauppskrift þegar ég var að æfa mig á forritið og endaði hún sem sýnidæmi fyrir allan bekkinn minn. Steina kennara fannst þetta í það minnsta girnileg kaka og nú er hún komin hingað fyrir ykkur að prófa!

Oreokaka með Oreosmjörkremi

Það þarf að gefa sér smá tíma til að jafna botnana og dúllast í skreytingunum en þetta er klárlega verkefni sem allir, með viljann að vopni ættu að ráða við.

Kaka með Oreokexi

Oreoterta uppskrift

Það er eitthvað við Oreo sem erfitt er að standast. Það er eins og það verði einhvern veginn allt gott sem það er sett í hvort sem það er mjólkurhristingur, súkkulaðimús, ostakaka eða hvað. Þessi kaka er blaut í sér og kremið guðdómlegt. Hægt er að baka og frysta botnana með fyrirvara og hræra krem og skreyta deginum áður, kakan geymist vel í kæli svona kremhjúpuð.

Oreokex í köku

Botnar

  • 240 g hveiti
  • 350 g sykur
  • 90 g Cadburys bökunarkakó
  • 2 tsk. matarsódi
  • 1 tsk. salt
  • 250 ml súrmjólk
  • 150 ml matarolía
  • 4 egg
  • 250 ml heitt vatn
  • 1 tsk. vanilludropar
  1. Hitið ofninn í 170°C.
  2. Hrærið saman öllum þurrefnum í eina skál og leggið til hliðar.
  3. Pískið eggin og blandið súrmjólk, olíu, vanilludropum og vatni saman við.
  4. Hellið vökvanum varlega saman við þurrefnin, hrærið og skafið niður á milli (deigið er þunnt).
  5. Takið til 4 x 15 cm smelluform, setjið bökunarpappír í botninn og spreyið vel með matarolíuspreyi.
  6. Skiptið deiginu jafnt á milli formanna og bakið í um 25-35 mínútur eða þar til prjónn kemur út með smá kökumylsnu á en ekki blautu deigi.
  7. Kælið alveg og skerið svo ofan af botnunum svo þeir verði alveg sléttir og kælið þá.

Krem

  • 18 x Oreokexkökur
  • 250 g smjör við stofuhita
  • 150 g rjómaostur við stofuhita
  • 900 g flórsykur
  • 4 msk. rjómi
  • 2 tsk. vanillusykur
  1. Setjið Oreokex í matvinnsluvél/blandara og myljið niður í duft, geymið.
  2. Þeytið smjör og rjómaost saman í nokkrar mínútur, skafið niður á milli.
  3. Bætið flórsykri, rjóma og vanillusykri saman við í nokkrum skömmtum og skafið vel niður.
  4. Setjið um 2/3 Oreo mylsnunnar í kremið og blandið vel (geymið restina til skrauts)
  5. Smyrjið um 1 cm þykki lagi af kremi á milli botnanna og hjúpið með örþunnu lagi, kælið í um 15 mínútur.
  6. Setjið nú seinna kremlagið á og það má vera um ½ – 1 cm á þykkt, sléttið úr eins og best verður á kosið.
  7. Setjið Oreomylsnu neðst á kökuna með lófanum og þjappið laust að, hreinsið umfram mylsnu burt.
  8. Kælið kökuna aftur í um 15 mínútur og setjið því næst ganaché á toppinn (sjá uppskrift að neðan).

Ganaché

  • 100 g saxað suðusúkkulaði
  • 60 ml rjómi
  1. Hitið rjómann að suðu og hellið yfir súkkulaðið.
  2. Pískið saman þar til allt súkkulaðið er bráðið, hrærið þar til byrjar aðeins að þykkna og hellið óreglulega yfir toppinn í nokkrum skömmtum, ýtið örlitlu magni fram af brúninni með kökuspaða, kælið í um 15 mínútur áður en þið skreytið.

Skraut

  • 8 x Oreo kexkökur
  • Oreo smjörkrem
  1. Stingið Oreokexi létt ofan í súkkulaðitoppinn með jöfnu millibili allan hringinn.
  2. Sprautið smjörkremstoppa, til dæmis með stút 2D frá Wilton og fyllið upp í bilið á milli kexanna. Geymið kökuna í kæli fram að notkun.
Oreokaka

Ó svo mikið falleg og góð!

Súkkulaðikaka með smjörkremi

Fjórir botnar, nóg af Oreokremi og ganaché til að toppa þetta!

Oreoterta með oreokremi

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun