
Þessar súkkulaðibitakökur eru alveg svakalega góðar! Oreo crumbs gefur kröns í annars mjúka smáköku sem er þó með stökkum köntum, alveg eins og hún á að vera. Ég veit ekki hvað við mæðgur „smökkuðum“ margar með ískaldri mjólk, svona til að tryggja gæðin, hahaha!

Það er ofureinfalt að baka súkkulaðibitakökur og það virðast flestir elska þær svo nú er um að gera að taka smjör úr kælinum og hefjast handa.

Það er einfalt og skemmtilegt að útbúa Oreo súkkulaðibitakökur eins og sést í myndbandinu hér fyrir neðan!
Oreo súkkulaðibitakökur uppskrift
Uppskrift gefur um 15 stykki
- 170 g smjör við stofuhita
- 150 g púðursykur
- 150 g sykur
- 2 egg
- 1 tsk. vanilludropar
- 200 g hveiti
- 1 tsk. matarsódi
- 1 tsk. lyftiduft
- 1 tsk. salt
- 150 g Oreo Crumbs með kremi (+ meira ofan á í lokin)
- 150 g hvítir súkkulaðidropar
- 150 g dökkir súkkulaðidropar
- Hitið ofninn í 175°C.
- Þeytið saman smjör og báðar tegundir af sykri þar til létt og ljóst.
- Bætið eggjunum saman við, einu í einu og skafið niður á milli og bætið þá vanilludropunum út í.
- Næst má setja hveiti, matarsóda, lyftiduft og salt og að lokum Oreo Crumbs og báðar tegundir af súkkulaðidropum.
- Setjið bökunarpappír á bökunarplötu og skammtið vel kúpta matskeið fyrir hverja köku (eða notið ísskeið til verksins).
- Stráið smá meira Oreo Crumbs ofan á deigið áður en það fer í ofninn.
- Bakið í um 10 mínútur eða þar til kantarnir fara aðeins að gyllast.

Mmmmmm þessar eru svo mikið góðar!
