
Það er að koma helgi, það eru að koma páskar og það er aftur komið Covid! Ef slíkt ástand kallar ekki á grillaðan gúrme hamborgara og eina Stellu þá veit ég ekki hvað!
Á dögunum var ég að þróa nostalgíuuppskrift af Svindlsamloku úr Skaraskúr og þar útbjó ég hamborgararelish fyrir leynisósuna í þeirri samloku. Ég hugsaði strax með mér að hamborgara relish yrði nú að vera prófað á hamborgara líka og ákvað því að skella í slíka samsetningu sem var alveg geggjuð! Íris Huld vinkona kom til mín í hádeginu í vikunni í löns í þessa líka fínu hamborgara og vorum við báðar sammála um að þetta færi sannarlega vel saman!

Hamborgarar með hamborgara relish
Hráefni fyrir 4
- 4 hamborgarar með brauði
- Ostsneiðar
- Gott krydd
- Hamborgarasósa
- Kál
- Tómatar
- Hamborgara relish
- Pikklaður rauðlaukur
Hamborgara relish uppskrift
- 50 g grænt relish á flösku
- 60 g tómatsósa
- 1 tsk. grillaðar paprikur (úr krukku)
- ½ tsk. paprikuduft
- ½ tsk. hvítlauksduft
- ½ tsk. laukduft
- ½ tsk. salt
- ¼ tsk. kanill
- ¼ tsk. hvítur pipar
- Saxið grilluðu paprikurnar alveg niður í mauk og blandið síðan öllum hráefnum saman í skál.
Pikklaður rauðlaukur uppskrift
Það er nóg að gera ½ uppskrift fyrir hamborgarana en þessi laukur geymist þó vel í lokuðu íláti í kæli og dásamlegt að eiga hann á annað góðgæti.
- 3 meðalstórir rauðlaukar
- 250 g sykur
- 250 ml vatn
- 250 ml borðedik
- 2 msk. rauðbeðusafi (fyrir bleikari lit, má sleppa)
- Skerið laukinn niður í þunnar sneiðar (heila hringi) og losið þær í sundur, setjið í stóra krukku/skál sem hægt er að loka.
- Sjóðið saman sykur, vatn og edik þar til sykurinn er uppleystur og bætið að lokum rauðbeðusafanum saman við.
- Hellið sjóðandi blöndunni yfir laukinn, setjið lokið á og setjið inn í kæli yfir nótt. Laukurinn geymist síðan vel í kæli.

Stella minnir mig alltaf mikið á Seattle tímann okkar því Hemmi og strákarnir áttu það til að drekka „nokkrar“ svona flöskur reglulega. Ég man líka að ég keypti kassa í Costco á $19,99, hahaha!
Á borgaranum er líka pikklaður rauðlaukur sem ég setti á síldarsnittur um daginn og það er geggjað að setja hann á hamborgara!
