Heilgrillaður lambahryggur



⌑ Samstarf ⌑
Heilgrillaður lambahryggur og meðlæti

Þessi lambahryggur er eitthvað sem þið verðið að prófa! Að pensla hann með Caj P grillolíu og elda á útigrillinu var svo svakalega gott að ömmuhryggurinn minn góði er kominn í hættu, hahaha! Það er gaman að prófa eitthvað nýtt og það er búið að vera svo mikið vor í lofti undanfarið, orðið bjart langt frameftir öllu svo grillið má sannarlega vera notað meira á næstunni.

Grillaður lambahryggur með Caj P

Heilgrillaður lambahryggur og meðlæti

Fyrir um 6-7 manns

Lambahryggur uppskrift

  • Lambahryggur (um 2,5 kg)
  • Caj P Original grillolía
  • Lambakjötskrydd
  • Álbakki
  1. Leyfið hryggnum að standa við stofuhita í að minnsta kosti klukkustund áður en hann fer á grillið.
  2. Skerið í skorpuna niður með hryggnum beggja vegna og síðan á ská í báðar áttir til að olían og kryddið njóti sín sem best og skorpan verði stökk.
  3. Penslið allan hrygginn vel með Caj P olíunni, kryddið þar á eftir og færið yfir á álbakka.
  4. Grillið við óbeinan hita (um 190-200°C), við erum með 3 brennara og slökktum á miðjubrennaranum og settum hrygginn þar og pössuðum að hitinn færi ekki yfir 200°.
  5. Hryggurinn er tilbúinn þegar kjarnhiti sýnir um 65-70° en þessi hryggur var í klukkustund á grillinu og var alveg fullkominn, örlítið bleikur á breiðari endanum og eldaður í gegn á þeim mjórri svo allir fengu kjöt eldað eins og þeir vildu.
  6. Hvílið kjötið í að minnsta kosti 10 mínútur áður en þið skerið í það.
Caj P grillolía á lambahrygginn

Sætkartöflufranskar uppskrift

  • 3 stórar sætar kartöflur
  • 5 msk. ólífuolía
  • Salt og pipar
  • Parmesanostur
  • Kóríander
  1. Flysjið kartöflurnar og skerið þær langsum til helminga. Skerið þær síðan niður í mjóar lengjur/franskar (um 1 x 1 cm).
  2. Veltið þeim upp úr ólífuolíu og kryddi og dreifið úr á tvær bökunarskúffur með bökunarpappír.
  3. Bakið í 200° gráðu heitum ofni í um 25-30 mínútur eða þar til þær verða mjúkar að innan og stökkar að utan (snúið nokkrum sinnum á eldunartímanum).
  4. Þegar ykkur finnst þær vera tilbúnar má rífa vel af parmesanosti yfir þær og baka aftur í örfáar mínútur.
  5. Saxið síðan kóríander og stráið yfir þær þegar þið berið þær á borð.
Sætkartöflufranskar með parmesan

Köld grillsósa uppskrift

  • 300 g sýrður rjómi
  • 30 g Tabasco Sriracha sósa
  • ½ lime (safinn)
  • 1 tsk. salt
  • 1 msk. saxað kóríander
  1. Pískið allt saman í skál og geymið í kæli fram að notkun.
Köld grillsósa með Tabasco Sriracha sósu

Salat

  • Klettasalat 1 poki
  • Fetaostur ½ krukka
  • 1 tsk. rauðlaukur
  • Grillaðar nektarínur, 2 stykki
  • Smá hunang
  1. Skerið nektarínur í sneiðar og grillið stutta stund á grillinu, penslið síðan með hunangi og geymið.
  2. Blandið salati, osti og rauðlauk saman í skál og dreifið úr nektarínunum yfir.
Salat með grilluðum ferskjum

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun