Tortellini spjót



⌑ Samstarf ⌑
Tortellinispjót með pestó

Það þarf sannarlega ekki alltaf að vera flókið til að vera gott, fallegt og fullkomið fyrir ýmis tilefni! Þessi dásamlegu tortellni spjót gerði ég fyrir auglýsingaherferð Sacla á dögunum og hér fyrir neðan getið þið séð hversu einfalt það er fyrir fjölskyldur, sem og aðra að útbúa þessi ljúffengu spjót.

Léttur forréttur eða smáréttur

Þessi tortellini spjót með pestó, tómötum og mozzarella eru snilldar hugmynd sem forréttur, smáréttur á hlaðborði, í nestisboxið eða það sem ykkur dettur í hug. Að nota ferskt pasta flýtir enn frekar fyrir svo þessi spjót geta verið tilbúin á örskotsstundu.

Hugmynd fyrir veisluna

Tortellini spjót uppskrift

Um 30 stykki

  • 250 g ferskt osta tortellini pasta
  • 2 msk. Sacla Wild Garlic pestó
  • Um 30 kirsuberjatómatar
  • Um 30 mozzarellakúlur
  • Balsamik gljái
  • Um 30 tréspjót
  1. Sjóðið tortellini samkvæmt leiðbeiningum og látið þá kalt vatn renna yfir pastað til að það eldist ekki frekar.
  2. Setjið pestó saman við og vefjið varlega saman með sleif.
  3. Þræðið næst upp á spjót; Tortellini, kirsuberjatómat og mozzarellakúlu, endurtakið þar til hráefnið er búið.
  4. Setjið að lokum smá balsamik gljáa yfir og berið fram.
Tortellinispjót með Sacla pestó á veisluborðið

Það eru til svo margar góðar bragðtegundir af pestó frá Sacla að ég hvet ykkur eindregið til að fara út fyrir hefðbundið basil (grænt) eða sólþurrkaða tómata (rautt) því það er svo gaman að breyta til!

veisluréttir á hlaðborð

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun