
Ég elska uppskriftir sem eru einfaldar um leið og þær geta verið veislumáltíð“ Þessi hér er sannarlega ein af þeim og heileldaður kjúklingur er klárlega vanmetinn að mínu mati. Mamma hefur gert kjúkling í potti með grænmeti um árabil. Hún setur oftast kartöflur, gulrætur, brokkoli og lauk en að þessu sinni var ég aðeins með kartöflur (sætar og venjulegar) og gulrætur þar sem ég útbjó lúxus sveppasósu með þessu.

Þetta var svooooo góð máltíð að þið hreinlega verðið að prófa! Á meðan kjúklingurinn eldast í pottinum í ofninum getur maður gengið frá, lagt á borðið og útbúið sósuna.

Heill kjúklingur í potti með sveppasósu
Fyrir um 4 manns
Kjúklingur í potti uppskrift
- 1 heill kjúklingur (um 2 kg)
- ½ kg litlar kartöflur
- 1 stór sæt kartafla
- 300 g gulrætur
- Ferskt timian
- Kjúklingakrydd, salt, pipar, hvítlauksduft
- Ólífuolía
- Hitið ofninn í 190°C.
- Skolið og þerrið kjúklinginn, berið á hann ólífuolíu og kryddið vel eftir smekk.
- Skerið niður grænmetið (og flysjið ef óskað) og setjið það í stóran pott/fat. Gott er að hafa sætkartöflubitana frekar stóra því þeir eldast hraðar en gulrætur og venjulegar kartöflur.
- Setjið ólífuolíu yfir grænmetið og kryddið með salti, pipar og hvítlauksdufti, blandið öllu saman og búið til smá holu fyrir kjúklinginn.
- Komið þá kjúklingnum fyrir ofan á grænmetinu, setjið lokið á pottinn og inn í ofn í 90 mínútur.
- Gott er að ganga frá öllu og útbúa sósuna á meðan og leyfa henni að malla þar til kjúklingurinn er klár.
Sveppasósa uppskrift
- 1 stk. villisveppaostur frá MS
- 200 g sveppir
- 400 ml rjómi frá Gott í matinn
- 50 g smjör frá Gott í matinn
- Salt og pipar
- 2 tsk. soyasósa
- 2 tsk. kjúklingakraftur
- Skerið sveppina niður og steikið við meðalháan hita upp úr smjör, kryddið eftir smekk.
- Þegar mesti safinn er gufaður upp má bæta hluta rjómans í pottinn og rífa villisveppaostinn saman við.
- Hrærið þar til osturinn hefur bráðnað og bætið þá restinni af rjómanum saman við ásamt soya sósu, kjúklingakrafti og kryddið til eftir smekk.
- Leyfið sósunni að malla á meðan kjúklingurinn eldast og berið síðan fram með honum.

Ég elska þennan villisveppaost og finnst hann passa undurvel í sveppasósuna!
