Lúxus penne pasta



⌑ Samstarf ⌑
Penne pasta með rjóma og tómat og parmesan

Hver elskar ekki máltíð sem hægt er að útbúa á um 20 mínútum með öllu! Stelpurnar mínar elska penne pasta með tómötum í dós og basilíku. Hér ákvað ég hins vegar að færa þann súper einfalda rétt upp á lúxus stig með því að bæta nokkrum eðalhráefnum á pönnuna. Úr varð þetta dýrindis pasta sem er samt eins einfalt og það getur orðið.

Einfalt penne pasta með tómat

Lúxus penne pasta uppskrift

Fyrir um 4-5 manns

  • 500 g De Cecco Penne pasta
  • 1 smátt saxaður laukur
  • 2 rifin hvítlauksrif
  • 100 ml Muga rauðvín
  • 100 g Hunt‘s Basil-Garlic-Oregano tómatpúrra
  • 1 dós Hunt‘s hakkaðir tómatar (411 g)
  • 100 g Philadelphia rjómaostur
  • 250 ml rjómi
  • 1 msk. oregano
  • 1 msk. söxuð basilíka
  • Smjör og ólífuolía til steikingar
  • Cheyenne pipar, salt, pipar
  • 50 g parmesan ostur (+ meira til að rífa yfir)
  1. Sjóðið penne pasta samkvæmt leiðbeiningum á pakka.
  2. Steikið lauk og hvítlauk við vægan hita upp úr smjöri og olíu í bland þar til laukurinn mýkist.
  3. Hellið rauðvíninu á pönnuna og leyfið því aðeins að gufa upp.
  4. Bætið þá tómatpúrru, tómötum í dós, rjómaosti og rjóma á pönnuna og hrærið saman.
  5. Kryddið til og blandið parmesan ostinum saman við í lokin og bætið þá pastanu saman við.
  6. Rífið meiri parmesanost yfir og gott er að bera pastað fram með hvítlauksbrauði.
Dececco penne pasta

Mmmmm svo gott!

Pasta með rauðvínskeim og tómat

Að setja smá rauðvín í réttinn gerði gæfumuninn og víst það var búið að opna flöskuna var auðvitað ekkert annað í stöðunni en njóta restarinnar með máltíðinni. Það þarf nefnilega alls ekki alltaf að vera steik til að leyfa sér smá rautt!

Muga rauðvín með pastanu

Mæli sannarlega með þessari fljótlegu og ljúffengu lúxusmáltíð

einfalt og fljótlegt pasta

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun