
Við erum alls ekki nógu dugleg að hafa fisk í matinn! Ég er alltaf að reyna að herða mig í þessum efnum og nú ætla ég að koma inn fleiri slíkum uppskriftum hér á næstunni. Lax er í uppáhaldi þegar kemur að fiski hjá mörgum hér í fjölskyldunni, já eða allur bleikur fiskur eins og stelpurnar mínar segja svo hér kemur ein ofurgóð uppskrift af slíkum!

Það er fljótlegt og einfalt að útbúa þennan rétt og öllum í fjölskyldunni fannst hann mjög góður!

Lax í rjómasósu með sólþurrkuðum tómötum
Fyrir um 4 manns
- 4 laxabitar (um 800 g)
- 2 rifin hvítlauksrif
- 150 g Sacla sólþurrkaðir tómatar
- 150 g Sacla grillaðar paprikur
- 400 ml rjómi
- 1 msk. Sacla Fiery Chilli Pestó
- 60 g spínat
- 30 g rifinn parmesan + meira til að rífa yfir
- 20 g smjör
- Ólífuolía
- Salt og pipar
- Skolið og þerrið laxinn.
- Bræðið smjörið og setjið smá ólífuolíu saman við á háum hita.
- Steikið laxinn í um 3-4 mínútur á hvorri hlið svo hann verði stökkur að utan og eldaður að innan, saltið og piprið og færið síðan yfir á disk og lækkið hitann á pönnunni.
- Setjið hvítlauk, grillaðar paprikur og sólþurrkaða tómata (gott að taka þá í tvennt ef þeir eru mjög stórir, sama á við um paprikuna) á pönnuna og steikið stutta sund, bætið við olíu eftir þörfum.
- Hellið rjómanum yfir og hrærið Pestóið saman við, kryddið aðeins til eftir smekk.
- Bætið þá parmesanosti saman við sósuna og hrærið þar til hann bráðnar og bætið að lokum spínatinu saman við.
- Leyfið þessu að malla í um tvær mínútur, bætið þá laxinum aftur á pönnuna og berið fram með kartöflum, kartöfluklöttum eða öðru sem hugurinn girnist.

Sólþurrkuðu tómatarnir og grilluðu paprikurnar fóru einstaklega vel með laxinum og Chilli pestóið gerði sósuna guðdómlega.
