
Stundum er maður algjörlega á síðustu stundu með mat og aðra daga reynir maður að nýta það sem er til í ísskápnum eða frystinum. Þegar stelpurnar mínar spyrja hvað sé ég matinn og ég segi „snarl“ þá hoppa þær hæð sína því oftast eru þær ánægðastar með eitthvað slíkt, hahahaha! Ég á alltaf til Hatting pizzabotna í frystinum því þær elska að gera sér pizzu eða samloku úr þeim svo ég ákvað að skella í eina svona skyndilausn til að deila hér með ykkur, þó svo flestir kunni að sjálfsögðu að grilla samloku með skinku og osti!

Pizzabotnarnir eru hrikalega góðir til að grilla samloku og svo verður maður að muna að spara ekki skinkuna né ostinn, það er lykilatriði! Síðan er snilld að henda „5 minute fries“ í ofninn á meðan maður græjar samlokunar, já og ekki má klikka á kokteil- og tómatsósunni!

„Kids and Chips“
Fyrir um 4-6 börn
- 8 x Hatting Mini Pizzabotn
- 2 x box af silkiskorinni skinku
- 8 þykkar ostsneiðar (ostsneiðar í pakka)
- 1 poki McCain 5 mínútnu franskar
- Kokteilsósa og tómatsósa
- Affrystið pizzubotnana og setjið vel af skinku og osti á milli.
- Grillið þar til osturinn er bráðinn og skerið þá hverja samloku í 2-4 hluta.
- Berið fram með frönskum, kokteilsósu og tómatsósu.

Það má sannarlega hugsa út fyrir boxið þó svo pizzabotn heiti pizzabotn, hann getur allt eins verið brauðsneið, vefja eða hvað sem er!

Jummý!