Fyllt eggaldin, kjúklingur og pestósósa



⌑ Samstarf ⌑
Kjúklingur og eggaldin

Það er alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt! Ég var að prófa að fylla og elda eggaldin í fyrsta skipti og mikið sem þetta var fullkomið meðlæti með kjúklingnum og sósunni, namm!

Eggaldin í matinn

Fyllt eggaldin, kjúklingur og pestósósa

Fyrir 4 manns

Fyllt eggaldin

  • 2 meðalstór eggaldin
  • 1 laukur
  • ½ krukka grillaðar paprikur frá Sacla
  • 2 msk. Sacla pestó með grilluðu eggaldin
  • 3 msk. parmesanostur + meira ofan á
  • Rifinn ostur
  • Oregano, salt, pipar, hvítlauksduft, paprikuduft
  • Olía til steikingar
  1. Hitið ofinn í 170°C.
  2. Skerið hvort eggaldin fyrir sig í tvennt, langsum og takið innan úr öllum helmingunum (skiljið þó eftir um 1 cm kant allan hringinn).
  3. Penslið hvert eggaldin með olíu, saltið og piprið og bakið í 20 mínútur.
  4. Saxið á meðan hlutann af eggaldininu sem þið tókuð úr smátt niður ásamt lauknum og grilluðu paprikunum.
  5. Steikið saxað eggaldin og lauk á pönnu upp úr olíu og kryddið eftir smekk.
  6. Þegar grænmetið er farið að mýkjast má bæta grilluðum paprikum og parmesanosti saman við og geyma.
  7. Takið eggaldinin úr ofninum eftir 20 mínútur, fyllið með grænmetisblöndunni og setjið rifinn ost og smá meiri parmesanost yfir og setjið aftur í ofninn í um 10 mínútur.
Fyllt eggaldin

Jummý!

Sacla eggaldinpestó

Kjúklingabringur

  • 4 kjúklingabringur
  • Gott kjúklingakrydd
  • Ólífuolía
  1. Hitið ofninn í 170°C.
  2. Snöggsteikið bringurnar á pönnu upp úr vel af olíu, kryddið eftir smekk.
  3. Færið yfir í eldfast mót og eldið í ofninum í um 20 mínútur, hvílið svo í um 10 mínútur.
  4. Það passar vel að setja bringurnar inn í ofn á sama tíma og eggaldinið og leyfa þeim síðan að hvíla á meðan eggaldinið fer í ofninn aftur.
Grillaður kjúklingur og meðlæti

Pestósósa

  • 350 ml rjómi
  • 2 msk. Sacla pestó með grilluðu eggaldin
  • ½ pepperoni kryddostur
  1. Rifið ostinn niður og setjið allt saman í pott og hitið þar til osturinn er bráðinn.
Kjúklingur með sósu og pestó

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun