
Harpa Karin elsta dóttir mín á allan heiðurinn af þessari uppskrift hér. Ég sá aðeins um að mynda matinn eftir að hún var búin að standa í ströngu í eldhúsinu og galdra fram þessa dýrindis máltíð. Hún hefur nokkrum sinnum gert svona rétt eftir Youtube myndböndum og hér kemur hennar útfærsla fyrir ykkur að prófa, ég mæli sko sannarlega með!

Appelsínukjúklingur uppskrift
Fyrir 4-6 manns
Krönsí kjúklingur
- 1 pk úrbeinuð kjúklingalæri (um 500 g)
- 90 g Maizena mjöl
- 280 g hveiti
- 1 msk. salt
- 1 tsk. pipar
- 1 egg
- 270 ml vatn
- 2 msk. ólífuolía
- Olía til steikingar (um 800 ml)
- Útbúið appelsínusósuna (sjá uppskrift hér að neðan) og geymið þar til kjúklingurinn er tilbúinn.
- Skerið kjúklinginn í munnstóra bita og leggið til hliðar.
- Hrærið þurrefnunum saman og bætið eggi, vatni og olíu saman við og pískið saman.
- Deigið á að vera álíka þykkt og pönnukökudeig (mögulega aðeins þykkara). Hellið kjúklingnum út í deigið og blandið vel.
- Hitið olíuna í um 180° í djúpum potti/pönnu (við flökkuðum á milli hæstu og meðalhæstu stillingar á helluborðinu).
- Setjið eins og 10 bita af kjúklingi í einu í pottinn með töng, losið í sundur og eldið í um 4-5 mínútur þar til húðin fer að gyllast.
- Takið upp úr með kleinuspaða/öðru götóttu áhaldi, hristið olíuna af og leggið á eldhúspappír á meðan þið steikið restina.
- Hrærið loks kjúklingnum út í heita appelsínusósuna og berið fram með hrísgrjónum, söxuðum vorlauk og sesamfræjum.
Appelsínusósa
- 4 hvítlauksrif
- 1 tsk. maukað engifer
- 2 appelsínur (safinn úr þeim)
- 100 ml hvítvínsedik
- 4 msk. soyasósa
- 2 tsk. sesamolía
- 100 g púðursykur
- 100 g sykur
- ½ tsk. Cheyenne pipar
- 3 msk. vatn
- 3 msk. Maizena mjöl
- Ólífuolía til steikingar
- Steikið rifinn hvítlauk og maukað engifer upp úr olíu í um eina mínútu við meðalháan hita.
- Bætið öllum öðrum hráefnum nema vatni og Maizena mjöli á pönnuna og hrærið við meðalhita þar til sykurinn fer að leysast upp.
- Pískið saman vatn og Maizena mjöl í skál og bætið út í sósuna til að þykkja hana, getið bætt aðeins meira vatni við ef ykkur finnst sósan of þykk eða aðeins meira Maizena sé hún of þunn.
- Hrærið þá kjúklingabitunum saman við sósuna með sleif og njótið með hrísgrjónum, sesamfræjum og vorlauk.
