Tígrisrækjuspjót með mangósalsa



⌑ Samstarf ⌑
Tígrisrækjuspjót

Þegar við bjuggum í Seattle byrjuðum við að grilla risarækjur fyrir alvöru og ég hef elskað þær síðan. QFC verslunarkeðjan var í sömu götu og húsið okkar og þangað rölti ég iðulega, keypti „two pounds“ af risarækju sem ég rölti svo með heim og lagði í einhvern gómsætan kryddlög áður en þær voru grillaðar.

Hér fyrir ofan má sjá uppskriftamyndband sem sýnir hversu einfalt er að útbúa þessa sumarlegu og ljúffengu máltíð!

grilluð rækjuspjót

Mmm……..

Tígrisrækja á grillið

Tígrisrækjuspjót með mangósalsa

Forréttur fyrir um 4 manns

Tígrisrækjuspjót

  • Um 700 g stór tígrisrækja frá Sælkerafiski (2 pakkar)
  • 200 ml Caj P grillolía með hvítlauk
  1. Affrystið rækjurnar, skolið og þerrið.
  2. Hrærið þeim saman við grillolíu í skál, plastið og geymið í kæli í að minnsta kosti 2 klukkustundir.
  3. Raðið rækjunum upp á grillspjót og grillið við háan hita í um 3 mínútur á hvorri hlið eða þar til þær verða bleikar á litinn, þá eru þær tilbúnar. Gott er að spreyja grillið fyrst með PAM matarolíuspreyi til að rækjurnar festist síður við.

Mangósalsa

  • 1 stórt mangó
  • ½ rauðlaukur
  • 1 stórt avókadó
  • 100 g Driscolls jarðarber
  • 3 msk. saxað kóríander
  • ½ lime (safinn)
  • Salt og pipar
  1. Skerið mangó, rauðlauk, avókadó og jarðarber smátt niður og setjið í skál ásamt kóríander.
  2. Kreistið lime safa yfir allt og kryddið eftir smekk með smá salti og pipar.
  3. Blandið varlega saman með sleif og kælið fram að notkun.

Lime dressing

  • 150 g sýrður rjómi
  • 150 g Heinz majónes
  • 1 msk. saxað kóríander
  • 1 tsk. Habanero Tabasco
  • ½ lime (safinn)
  • Salt og pipar eftir smekk
  1. Pískið saman allt hráefni og geymið í kæli fram að notkun.
Tigrisrækjur frá sælkerafiski á grillið

Tígrisrækjurnar frá Sælkerafiski eru stórar og guðdómlegar til að útbúa dýrindis grillspjót sem þessi!

Rækjur á grillið með sumarívafi

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun