
Að grilla heilan kjúkling á útigrillinu er ÆÐI! Fyrir ykkur sem ekki hafið prófað þá mæli ég 100% með. Mér finnst best að nota Weber kjúklingagrindina sem við fengum einu sinni í jólagjöf frá mömmu og pabba en þar situr kjúklingurinn vel, safinn lekur niður í grindina ef maður vill nota í sósu og minni líkur eru á að neðri hlutinn brenni. Svokallaður „Beer-Can-Chicken“ er vinsæll í Bandaríkjunum en þá er hægt að hálftæma bjórdós og láta kjúklinginn sitja á henni og slíkt má einmitt gera hér ef þið eigið ekki svona grind. Í þessari grind er hins vegar hólf sem má fylla með bjór, kryddjurtum eða öðru gómsætu til að gera kjúklinginn enn betri.

Heilgrillaður kjúklingur uppskrift
Fyrir um 3-4
Kjúklingur á grilli
- 1 heill kjúklingur (um 1,8 kg)
- Ólífuolía til penslunar
- Kjúklingakrydd
- ½ Stella Artois dós eða magn sem passar í hólfið á standinum ef þið notið slíkan.
- Þerrið kjúklinginn vel, berið á hann ólífuolíu og kryddið vel allan hringinn.
- Hitið grillið í 180-200°C.
- Hellið bjór í hólfið á standinum eða opnið dósina með dósaopnara og hellið um helming bjórsins út (í glas til dæmis, haha).
- Komið kjúklingnum fyrir „sitjandi“ ofan á dósinni eða á standinum.
- Grillið við óbeinan hita við 180-200° í lokuðu grilli í um 65-75 mínútur eða þar til kjarnhiti sýnir um 74°C.
- Leyfið kjúklingnum að standa í að minnsta kosti 10 mínútur áður en þið skerið í hann.

Grænmeti á grillið
- 2 sætar kartöflur
- 1 rauðlaukur
- Ólífuolía
- Salt, pipar, hvítlauksduft, annað krydd (t.d rósmarín)
- Skerið kartöflurnar niður í litla teninga og laukinn í stóra bita. Blandið öllu saman á grillpönnu, veltið upp úr ólífuolíu og kryddið eftir smekk.
- Grillið við óbeinan hita í um 40 mínútur eða þar til kartöflurnar verða mjúkar (tíminn fer eftir stærð bitanna). Gott er að hræra reglulega í kartöflunum allan tímann.

Grillsósa uppskrift
- 300 g sýrður rjómi
- 2 rifin hvítlauksrif
- ½ lime (safinn)
- Salt, pipar, hvítlauksduft eftir smekk
- Pískið allt saman í skál og geymið í kæli fram að notkun.

Þessi máltíð var svo góð og ekki skemmir fyrir að hún er einnig í hollari kantinum!