
Paella er skemmtilegur réttur sem einkennir Spán í mínum huga, já svona fyrir utan Sangriu, hahaha! Ég hef í gegnum tíðina oft gert allt konar hrísgrjónarétti í Paellu líki sem hafa verið vinsælir á heimilinu en ákvað núna að reyna að gera þetta meira eins og á að gera þetta. Lillý & Roby vinir okkar kunna þetta upp á tíu eins og aðra spænska eða ítalska eldamennsku og fékk ég góða punkta hjá þeim. Paella er venjulega elduð í sérstakri pönnu en þar sem ég var að fá mér draumapottinn minn frá Le Creuset úr Byggt & búið mátti ég til með að prófa að elda þetta í honum. Úr varð dýrindis veisla með spænsku yfirbragði sem við kunnum öll að meta og þetta er tilvalinn réttur fyrir næsta matarboð!

Það má sannarlega leika sér með þau hráefni sem fara í pottinn en laukur, hvítlaukur og tómatar eru lykilatriði ásamt nóg af olíu og kryddum. Hér fyrir neðan finnið þið útfærslu frá mér en ég á svo sannarlega eftir að prófa þær fleiri!

Paella uppskrift
Fyrir um 6-8 manns
- 500 g risarækja
- 600 g kjúklingalundir
- 200 g Chorizo pylsa
- 1 rauð paprika
- 1 laukur
- 2 rifin hvítlauksrif
- 2 lúkur belgbaunir
- 1 dós hakkaðir tómatar (411 g)
- 500 g Arborio hrísgrjón
- 1200 ml vatn
- 2 msk. kjúklingakraftur
- Ólífuolía til steikingar
- Salt, pipar, paprikuduft
- 1 tsk. saffran
- Kóríander og sítróna ofan á í lokin (það má sleppa kóríander)
- Steikið risarækjuna upp úr ólífuolíu og vel af kryddum og geymið síðan á disk.
- Skerið kjúklingalundirnar niður og steikið upp úr ólífuolíu og kryddið vel, skerið Chorizo pylsuna einnig í teninga og bætið saman við kjúklinginn í lokin, geymið síðan hvorutveggja á disk.
- Setjið aftur vel af ólífuolíu í pottinn, skerið papriku í strimla og saxið laukinn. Steikið ásamt hvítlauknum og belgbaununum þar til mýkist og kryddið vel.
- Bætið þá kjúkling og pylsu aftur í pottinn, tómötum úr dós, vatni og krafti, smakkið til með kryddum og leyfið að malla í um 15 mínútur.
- Kryddið áfram eftir smekk, bætið meiri krafti við ef ykkur finnst þurfa meira bragð og bætið saffrani saman við áður en grjónin fara í pottinn. Gott er að hafa soðið vel kryddað og bragðmikið svo rétturinn verði betri.
- Hellið nú grjónunum saman við og blandið vel, leyfið að malla við vægan hita þar til vökvinn gufar upp að mestu og grjónin mýkjast.
- Þegar grjónin eru tilbúin má raða rækjunum ofan á, saxa smá kóríander og skera niður sítrónu til að kreista yfir.

Paprikan og kryddin gefa Paellunni litinn og ekki spara þegar kemur að kryddunum og verið dugleg að smakka til. Þegar grjónin eru komin í pottinn á helst ekki að hræra neitt. Það kemur stökk himna af hrísgrjónum á botninn sem kallast socarrat og telst vera partur af því að elda Paellu rétt og Lillý segir það sé einmitt besti parturinn. Stingið bara skeið/gaffli í pottinn til að smakka grjónin til og bætið smá meira soði saman við í lokin ef þau eru ekki alveg tilbúin og vökvinn allur gufaður upp.
Sumir Spánverjar segja að kóríander sé algjört no-no en ég elska kóríander svo ég ákvað að skreyta með honum og fékk skammir í hattinn fyrir vikið, haha! Það eru síðan margir sem nota kjúklingalæri í stað þess að sneiða niður hreint kjöt og beinin gefa gott bragð í soðið, þá þarf ekki að nota kjúklingakraft, heldur bara sjóða allt saman vel áður en grjónin fara í pottinn.

Þessi pottur er undursamlegur, ekta súpupottur, pottréttapottur eða annað fyrir fjölskylduboðin, afmælin og fleira!

Sjáið þið þetta bjútí! Ég er auðvitað forfallinn Le Creuset aðdáandi og langar helst að eiga potta, pönnur og eldföst mót í öllum litum, haahahaha! Það er bara svo miklu skemmtilegra að elda og baka þegar maður á falleg eldhúsáhöld og leirtau!
