Einfalt lasagna



⌑ Samstarf ⌑
Einfalt lasagna

Lasagna – Lasagna – Lasagna….. það er eitthvað við lasagna sem allir elska! Ég skil ekki af hverju ég geri þennan rétt ekki oftar því það er alltaf borðað vel þegar lasagna er á boðstólnum.

Eldfast mót með lasagna

Mér finnst alltaf gott að gera stóra uppskrift svo hægt sé að hafa afgang í matinn aftur næsta dag. Að þessu sinni eldaði ég meira að segja svo mikið lasagna að það var hér í matinn þrjá daga í röð og dætur mínar spurðu síðan á fjórða degi hvort það væri ekki lengur til lasagna og þá hló ég nú upphátt, hahaha! Það voru hins vegar hin bestu meðmæli svo ykkur er klárlega óhætt að gera stóra uppskrift! Síðan má auðvitað líka alltaf frysta lasagna, hvort sem það er í heilu eða bitum til að eiga og hita upp þegar lítill tími gefst fyrir eldamennsku eða til að grípa með í nesti.

Svart eldfast mót

Ég er algjör „sökker“ fyrir fallegum hlutum í eldhúsið og þessi eldföstu mót laumuðu sér með mér heim úr Húsgagnahöllinni á dögunum. Þau eru frá DutchDeluxes og eru alveg hrikalega flott! Þau eru með loki og hitaplatta og er ég búin að setja mitt upp í hillu í eldhúsinu því mér finnst það svo fallegt. Notagildið er síðan mikið því hitaplattann má setja undir fatið þegar það kemur úr ofninum og það má ýmist nýta lokið til þess að elda í lokuðum potti eða til þess að loka fatinu og geyma afganga inn í ísskáp, algjör snilld!

Lasagna uppskrift

Einfalt lasagna uppskrift

Lasagna

  • 1 kg nautahakk
  • 1 laukur
  • 2 hvítlauksrif
  • 900 g pastasósa
  • Lasagnaplötur
  • Oregano
  • Salt og pipar eftir smekk
  • Hvít ostasósa (sjá uppskrift að neðan)
  • Rifinn ostur (mozzarella og cheddar í bland)
  1. Saxið laukinn smátt og rífið niður hvítlaukinn.
  2. Steikið hakkið á pönnu ásamt báðum tegundum af lauk, kryddið til með salti, pipar og oregano.
  3. Hellið næst pastasósu yfir hakkið og leyfið að malla við vægan hita á meðan þið útbúið hvítu sósuna.
  4. Raðið saman í fat: hakk, lasagnaplötur, hvít sósa, og endurtakið x 3 nema setjið svo fjórðu umferðina af hakki efst og vel af rifnum osti yfir allt saman.
  5. Bakið við 180°C í um 30 mínútur og leyfið aðeins að standa áður en þið skerið niður.

Hvít sósa

  • 170 g rifinn ostur (mozzarella og cheddar í bland)
  • 140 g rjómaostur
  • 200 ml nýmjólk
  • 1 tsk. salt
  1. Setjið allt saman í pott og hrærið þar til osturinn hefur bráðnað.
Heimagert lasagna

Stærra mótið á myndunum er DutchDeluxes M

Minna mótið á myndunum er DutchDeluxes S

Heimagert lasagna í eldföstu móti

Uppskriftin sem þið finnið hér passaði akkúrat í stærð M og var hrikalega girnileg í þessu fallega eldfasta móti.

Eldfast mót og sleif úr tré

Þessi fallega Acaciuskeið er líka frá DutchDeluxes. Það er bara allt fallegt sem þetta vörumerki framleiðir, það er í það minnsta stórhættulegt fyrir mig að kíkja á svona lagað, tíhí! Æji það er bara svo gaman að punta upp hjá sér og bera mat fram í fallegum ílátum.

Fallegt eldfast mót

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun