
Hér er á ferðinni ekta „Street Food“ matur og það er leikur einn að útbúa þennan rétt heima hjá sér og koma gestum skemmtilega á óvart með útkomunni. Um er að ræða hægeldað nautakjöt þar sem soyasósan spilar stórt hlutverk. Kjötið er síðan tætt niður og sett í naan brauð ásamt chili majónesi, osti og grænmeti. Það er hægt að nota hvaða nautakjöt sem er, hér notaði ég ungnauta innlæri en það er hægt að nota ribeye, snitsel eða annað, hægeldunin gerir allt kjöt svo meyrt og gott.

Þessa uppskrift fékk ég hjá Þórunni vinkonu en hún hafði fallið fyrir þessum rétti hjá Önnu Birnu vinkonu sinni. Svona fara uppskriftir víst á milli manna og skilst mér að upphaflega útfærslan af þessari uppskrift komi frá Gordon Ramsey og hafi tekið smá breytingum á leiðinni hingað. Hér kemur í það minnsta útfærslan frá Þórunni sem ég féll gjörsamlega fyrir í sumarbústaðarferð um árið. Namm!

Hægeldað nautakjöt í naan
Uppskrift dugar í um 10-12 lítil naan brauð eða fyrir um 5-6 manns
Kjöt og marinering
- 700-800 g ungnautakjöt
- 200 ml Kikkoman soyasósa
- 200 ml ólífuolía
- 2 x lime (safinn)
- 150 g púðursykur
- 2 x ferskt chilli (saxað)
- 1 búnt af ferskum kóríander (saxað)
- Útbúið soyamarineringuna með því að blanda öllum ofangreindum hráefnum saman í skál (fyrir utan kjötið auðvitað).
- Takið rúmlega fjórðung til hliðar og setjið í skál inn í ísskáp til að bera fram með réttinum þegar hann er tilbúinn.
- Steikið kjötið örstutt við háan hita til að loka því, hellið restinni af marineringunni yfir, leyfið suðunni að koma upp og lækkið þá hitann vel niður, setjið lok á pönnuna/pottinn og leyfið að hægeldast þannig í 5-6 klukkustundir. Gott er að snúa kjötinu 2-3 sinnum á meðan til að allar hliðar liggi jafn lengi í marineringunni þar sem hún hylur kjötið ekki að fullu.

Chili majónes
- 200 g Hellmann‘s majónes
- 40 g Sambal Oelek
- 1 tsk. limesafi
- Allt hrært vel saman í skál og geymt í kæli fram að notkun. Einnig er hægt að nota tilbúið Chili majónes frá Hellmann‘s.

Annað meðlæti
- Lítil naan brauð (10-12 stykki)
- Kínakál (saxað)
- Rauðlaukur (skorinn í sneiðar)
- Ferskur kóríander
- Rifinn cheddar ostur
Samsetning
- Setjið chili majónes í botninn á brauðinu ásamt káli og lauk.
- Næst kemur rifinn ostur og kjöt.
- Gott er að setja smá af soyamarineringunni yfir kjötið í lokin ásamt vel af ferskum kóríander. Einnig má setja sneiðar af fersku chilli.

Mmmmm, þetta er ofureinfaldur réttur svo lengi sem þið gefið kjötinu tíma fyrir þessa eldunaraðferð, namm!
