
Humarsúpa er guðdómleg, hvort sem hún er sem forréttur eða aðalréttur. Þessa súpu vorum við með í kvöldmatinn hjá okkur, allir borðuðu vel og voru pakksaddir að máltíð lokinni.

Ég veit ekki af hverju maður gerir ekki oftar humarsúpu heima hjá sér! Þetta er réttur sem við pöntum okkur oft á veitingastöðum en mikið sem það er yndislegt að malla í svona súpu heima og ilmurinn, maður minn!

Humarsúpa uppskrift
Fyrir um 6 manns
- Um 950 g skelflettur humar frá Sælkerafiski
- 1 laukur
- 1 blaðlaukur
- 3 gulrætur
- 1 rauð paprika
- 3 hvítlauksrif
- 50 g smjör
- 2 msk. tómatpúrra
- 2 msk. sterkt karrý
- ½ tsk. cheyenne pipar
- 1 líter vatn
- 5 msk. fljótandi humarkraftur frá Oscar
- 2 msk. fljótandi nautakraftur frá Oscar
- Salt og pipar eftir smekk
- 400 ml kókosmjólk
- 300 g Philadelphia rjómaostur
- 200 ml Muga hvítvín
- 500 ml rjómi (í súpupottinn)
- 250 ml þeyttur rjómi (til að setja ofan á í skálinni)
- Affrystið og þerrið humarinn, geymið.
- Saxið lauk, blaðlauk, gulrætur, papriku og hvítlauksrif gróft niður.
- Steikið upp úr smjörinu og kryddið með karrý, cheyenne pipar, salti og pipar.
- Þegar grænmetið fer aðeins að mýkjast má bæta tómatpúrrunni saman við og hræra vel og því næst hella vatninu ásamt humarkraftinum út í pottinn og ná upp suðunni.
- Síðan má láta blönduna malla svona í að minnsta kosti klukkustund við vægan hita.
- Takið næst töfrasprota og maukið allt grænmetið í pottinum svo súpan verði kekkjalaus.
- Bætið þá rjómaosti, kókosmjólk og 500 ml rjóma í pottinn og smakkið til með salti, pipar og meiri krafti ef ykkur finnst þurfa. Leyfið aftur að malla svolitla stund.
- Þá fer hvítvínið saman við og súpan er hituð aftur að suðu og humrinum bætt út í pottinn og slökkt undir. Leyfið humrinum að liggja í sjóðheitri súpunni í örfáar mínútur áður en þið setjið súpu á diska.
- Berið fram með þeyttum rjóma og steinselju. Einnig er gott að hafa snittubrauð eða hvítlauksbrauð með súpunni.

Það er svo þægilegt að nota humarinn frá Sælkerafiski í svona rétti, það þarf ekkert að gera nema affrysta, skola og þerra og hann er tilbúinn í súpuna!

Þeytti rjóminn setur síðan punktinn yfir I-ið og er algjörlega ómissandi að mínu mati.

Víst það þarf síðan að opna flösku til að setja smá slurk í súpuna er eins gott að kæla flöskuna áfram vel til þess að geta notið þess að fá sér hvítvínsglas með súpunni, það er klárlega hin fullkomna tvenna.
