
Það er að koma helgi og hversu fullkomið er að gera eina marengstertu!

Ég elska púðursykurmarengs og get held ég gert endalausar tilraunir með nýjar fyllingar. Hér prófaði ég að setja kaffikrem ofan á marengsinn og kaffi í rjómann og NAMMI, NAMMI, NAMM….þetta er geggjuð terta!

Kaffimarengs
Marengsbotn uppskrift
- 6 eggjahvítur
- 150 g sykur
- 330 g púðursykur
- 2 tsk. Cream of tartar
- Hitið ofninn í 120°C.
- Þeytið eggjahvítur þar til þær fara að freyða.
- Blandið báðum tegundum af sykri saman í skál og setjið saman við eggjahvíturnar í litlum skömmtum.
- Þeytið þar til topparnir halda sér vel, lækkið þá hraðann og bætið Cream of tartar saman við og blandið stutta stund.
- Teiknið hring á bökunarpappír (á bökunarplötu) sem er um 23-35 cm í þvermál, hellið blöndunni þar á miðjuna og reynið að móta nokkurs konar grunna skál.
- Það er gott að ýta fyrst upp úr miðjunni til hliðanna og móta nokkurs konar holu. Fara síðan með spaða að utanverðu allan hringinn og draga í sveig upp og ofan í holuna.
- Bakið í 110 mínútur og leyfið síðan að kólna með ofninum áður en þið fyllið og skreytið.
Kaffikrem uppskrift
- 70 g brætt smjör
- 180 g flórsykur
- 30 g bökunarkakó
- 2 tsk. vanilludropar
- 4 msk. heitt uppáhellt BKI Gull kaffi
- Setjið allt saman í skál og pískið saman.
- Hellið yfir marengsbotninn, bæði ofan í „holuna“ og upp á kantana svo aðeins leki niður.
- Næst fer rjómafyllingin yfir kremið.
Rjómafylling
- 4 msk. kalt, uppáhellt BKI Gull kaffi
- 500 ml rjómi
- Hershey‘s kisses og bökunarkakó til skrauts
- Setjið kalt kaffið og rjómann saman í skál og þeytið þar til stífþeytt.
- Setjið ofan í „holuna“ og aðeins upp á kantana á marengsinum.
- Sigtið smá bökunarkakó yfir rjómann og skreytið með Hershey‘s kossum.

Ef ykkur langar í eitthvað gott þá er þessi fullkomin!
