Þorskhnakkar með stökkum parmesanhjúp



⌑ Samstarf ⌑
Fiskur uppskriftir

Ég er allt of löt að vera með fisk í matinn sem ég skil síðan aldrei þegar ég geri eitthvað undur ljúffengt eins og þessa uppskrift hér! Ég þarf klárlega að herða mig í fiskréttunum og reyna að hafa fisk að minnsta kosti einu sinni í viku.

Ofnbakaður fiskur

Fiskur, smælki, smjörsteiktur aspas og köld Tabasco sósa, namm!

Góður fiskur

Þorskhnakkar með stökkum parmesanhjúp

Fyrir um 4 manns

Fiskur

  • Um 800 g þorskhnakkar
  • 60 g panko rasp
  • 50 g rifinn parmesan
  • 60 g smjör við stofuhita
  • 1 tsk. Tabasco Original Sauce
  • 1 msk. söxuð steinselja
  • 3 rifin hvítlauksrif
  • Safi úr ½ sítrónu
  • Salt, pipar, hvítlauksduft
  1. Skolið og þerrið fiskinn. Smyrjið eldfast mót og raðið þorskhnökkunum í mótið (ég skar hvert flak niður í 2 bita). Kryddið vel með salti og pipar.
  2. Blandið raspi, parmesan, smjöri, Tabasco, steinselju, hvítlauk og sítrónusafa saman í skál. Best er að hnoða saman í höndunum og krydda til með salti, pipar og hvítlauksdufti. Ég notaði um 1 tsk. af hvítlauksdufti og salti og eins og ½ tsk. af pipar.
  3. Setjið vel af parmesanblöndu yfir hvert fiskstykki.
  4. Bakið við 200°C í 12-15 mínútur (eftir þykkt fiskbitanna).

Kartöflur

  • Um 600 g smælki
  • Ólífuolía
  • Salt, pipar, hvítlauksduft
  1. Hitið ofninn í 200°C.
  2. Skerið kartöflurnar til helminga og veltið upp úr 2-3 msk. af ólífuolíu.
  3. Kryddið með um 1.tsk af salti og hvítlauksdufti og um ½ tsk. af pipar.
  4. Bakið í um 30 mínútur eða þar til kartöflurnar mýkjast.

Smjörsteiktur aspas

  • 1 ferskt aspasbúnt
  • 60 g smjör
  • Salt, pipar, hvítlauksduft eftir smekk
  1. Bræðið smjörið við meðalháan hita og veltið aspasnum upp úr því og snúið reglulega.
  2. Kryddið eftir smekk og leyfið að malla þar til aspasinn mýkist.

Köld Tabasco sósa

  • 1 dós sýrður rjómi (180g)
  • Safi af ½ sítrónu
  • 1 tsk. salt
  • 1 tsk. paprikuduft
  • 1 tsk. Tabasco Original Sauce
  • Pískið allt saman í skál og geymið í kæli fram að notkun.

Þá er gott að byrja á því að útbúa hjúpinn á fiskinn og leggja til hliðar á meðan þið undirbúið kartöflurnar og setjið þær í ofninn.

Þegar kartöflurnar eru komnar í ofninn passar vel að útbúa köldu sósuna, setja hjúpinn á fiskinn og koma aspasnum í eldun. Þegar kartöflurnar hafa verið í ofninum í um 15 mínútur má bæta fisknum við og baka hvorutveggja áfram í um 15 mínútur.

Á meðan mallar aspasinn og gott er að leggja á borðið og ganga frá því sem notað var við eldamennskuna.

Tabasco sósa með fiskinum

Það má setja meira eða minna af Tabasco sósu í þennan rétt eftir því hversu mikið þið eruð fyrir sterkt!

Köld sósa með fiski

Það tekur enga stund að píska sjálfur í kalda sósu og hún passar einstaklega vel með þessum fiskrétti.

Þorskur og stökkur hjúpur

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun