Bökuð ostaflétta



⌑ Samstarf ⌑
Saumaklúbbréttur

Bakaðir ostar eru eitt það allra besta og núna er ostatíminn sannarlega að ganga í garð! Október heitir ekki OSTÓBER af ástæðulausu hjá Gott í matinn og ætla ég einmitt að vera dugleg að setja inn ostahugmyndir hingað fyrir ykkur þennan mánuð!

Bakaður ostur með fíkjum

Dala Auður er einn uppáhalds osturinn minn og hér kemur útfærsla með honum þar sem ég fyllti smjördeig með osti og gúmelaði og bakaði í ofni, namm!

Dala Auður er svo góður ostur

Mmmm…..svo mjúkur og bragðgóður!

Bakaður brie í smjördeigi

Bökuð ostaflétta

  • 2 x Dala Auður
  • 4 x smjördeigsplötur (keyptar frosnar)
  • 3 msk. fíkjusulta
  • 120 g pekanhnetur
  • 3 msk. púðursykur
  • 3 msk. sýróp
  • ½ tsk. cayenne pipar
  • Egg til penslunar
  • Ferskar fíkjur
  1. Afþýðið smjördeigsplöturnar, raðið tveimur saman hlið við hlið langsum og næstu tveimur í beinni línu þar fyrir ofan og klemmið saman samskeytin.
  2. Sjóðið saman púðursykur, sýróp og pipar í um 5 mínútur, saxið pekanhneturnar gróft á meðan og hellið þeim síðan saman við og hjúpið vel. Takið af hellunni og hrærið áfram þar til þær hafa drukkið sykurbráðina í sig og sykurhjúpurinn fer að storkna, geymið.
  3. Smyrjið miðjuna á smjördeiginu með fíkjusultu og skerið um 2 cm breiðar ræmur skáhallt niður sitthvoru megin við miðjuna (til að vefja yfir góðgætið í lokin).
  4. Skerið ostana niður í litla bita og hrúgið yfir sultuna ásamt pekanhnetunum (geymið smá af hnetum til skrauts).
  5. Pískið eggið og vefjið smjördeigsræmunum yfir miðjuna og penslið í framhaldinu (þá festast þær  betur saman).
  6. Bakið í 200° heitum ofni í 20 mínútur eða þar til smjördeigið er orðið vel gyllt.
  7. Skerið ferskar fíkjur niður og raðið ofan á ostafléttuna ásamt restinni af pekanhnetunum.

Hér fyrir ofan getið þið séð aðferðina, þetta er alls ekki flókið og alveg hrikalega gott. Það má síðan að sjálfsögðu leika sér með fyllingar. Það gæti til dæmis líka verið gott að setja pestó og hráskinku með ostinum eða annað gúmelaði.

Bakaður ostur hugmyndir

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun