Sumarfrí á Norðurlandi



Já krakkar mínir, það er ekki seinna að vænna en klára að skrifa um dásamlega sumarfríið okkar síðastliðið sumar! Við gerðum einfaldlega svooooo margt skemmtilegt að ég hef verið að skipta þessu niður í hluta til þess að gefa ykkur hugmyndir fyrir afmörkuð landsvæði í hverri færslu. Mér finnst svo gaman að geta fundið góðar upplýsingar um alls konar áhugaverða staði á netinu og ég vona innilega þessar færslur nýtist ykkur þegar komandi frí verða skipulögð!

Við yfirgáfum yndislega Austurlandið á sólríkum degi eftir að hafa dvalið þar í nokkrar nætur og skoðað ýmislegt áhugavert. Leiðin lá næst til Húsavíkur og byrjuðum við á því að stoppa við Dettifoss og ganga upp að þessum magnaða fossi. Krafturinn er svo svakalegur að maður hreinlega fær í magann bara við að standa og horfa á hann!

Norðurland Ásbyrgi og Dettifoss

Eftir að hafa skoðað Dettifoss fórum við í Ásbyrgi í stutta göngu niður að Botnstjörn. Það er ævintýri líkast að ganga um í Ásbyrgi, klettarnir, gróðurinn og friðsældin er engu lík.

Didriksons flísgalli frá Ellingsen #samstarf

Lítil skotta sem elskaði að kalla og heyra bergmálið í sjálfri sér niðri við Botnstjörn.

Húsavík sumarfrí

Við komum inn á Húsavík að kvöldi til, fengum okkur að borða og höfðum það síðan kósý á hótelherberginu okkar eftir ævintýralegan dag. Stelpurnar horfðu á Eurovision myndina því næsta dag átti sko sannarlega að fara í leiðangur og finna álfahúsið, Jaja-Ding-Dong barinn og fleira skemmtilegt.

Eurovision og jaja ding dong barinn

Við vorum svo heppin næsta dag að það var akkúrat verið að vinna í Eurovision safninu á Jaja-Ding-Dong barnum og okkur var leyft að kíkja aðeins inn fyrir. Stelpunum þótti það mjög gaman og við þurfum klárlega að kíkja á þetta safn síðar þegar það hefur opnað og allt verður tilbúið.

Álfabærinn úr Eurovision myndinni á Húsavík

Hulda Sif var mjööööög spennt að sjá álfahúsið og síðan var hún líka viss um að leikararnir væru þarna og var eiginlega smá spæld þegar hún komst að því að svo var ekki, tíhí!

Hvalasafnið á Húsavík

Næst lá leiðin í Hvalasafnið á Húsavík en þangað höfum við komið áður. Þar eru beinagrindur af hvölum í fullri stærð og margt áhugavert að skoða.

Hvalasafnið

Stelpurnum þótt samt sorglegt hversu mikið af plasti fer í sjóinn og verður mörgum sjávardýrum að bráð. Það er svo mikilvægt að setja rusl réttu leiðina og aldrei að henda því út í náttúruna!

Geo Sea Húsavík

Við urðum auðvitað að halda áfram að prófa alla nýju sundstaðina og kíktum í GeoSea. Þar er ótrúlega fallegt og notalegt að slaka á. Hulda Sif elskar reyndar mest af öllu að kafa í sundi og var hún ekki alveg nógu sátt með saltvatnið, hahaha!

Bryggjan á Húsavík

Eftir bað og síðbúinn hádegisverð yfirgáfum við Húsavík og stoppuðum við Gullfiskatjörnina á leiðinni út úr bænum.

Gullfiskatjörnin á Húsavík

Þessi yltjörn er hluti af Kaldbakstjörnum en í hana rennur heitt vatn svo hún er ylvolg allt árið og í henni lifa villtir gullfiskar. Við sáum marga, stóra gullfiska sem stelpurnar reyndu að ná í háfana sína en þeir voru ekki alveg tilbúnir í það og létu hafa fyrir sér, hahaha! Það voru því aðeins annars konar síli veidd þennan dag en mikið sem þær skemmtu sér vel og virkilega gaman að sjá alla þessa gullfiska í vatninu.

Ævintýri á Norðurlandi og gisting í tjaldi

Næsti næturstaður var heldur betur ævintýralegur! Stelpurnar vildu svo mikið fá að gista í tjaldi í ferðalaginu en við erum ekki beint útilegufólk. Það er hins vegar hægt að bóka gistingu í tjaldi sem er upphitað með uppábúnum rúmum hjá Original North!

Við duttum inn á þennan gistimöguleika fyrir algjöra tilviljun og vissum að þetta myndi slá í gegn hjá okkar dömum. Það var því mikil spenna sem ríkti yfir „tjaldútilegunni“ sem framundan var.

Original North á Norðurlandi

Við vorum í fjölskyldutjaldi svo það var nóg pláss fyrir alla. Staðsetningin og útsýnið á þessum stað í Þingeyjarsveitinni, maður minn! Þetta er engu líkt og svo friðsæll og fallegur staður. Ekki skemmdi góða veðrið fyrir og það er alveg klárt mál að við munum heimsækja þennan stað aftur síðar.

Fjallahjólaferðir á Norðurlandi

Við skelltum okkur síðan í rafmagnshjólaferð á fjallahjólum um Fosselsskóg og gengum að Ullarfossi. Þetta var mögnuð upplifun og helst langar okkur bara að eiga svona hjól þetta var svo gaman, hahaha! Boðið var upp á flatkökur með heimareyktum silungi í skóginum og var þessi ferð dásamleg í alla staði.

Ullarfoss á Norðurlandi

Ullarfoss er náttúruperla og er við gljúfur Skjálfandafljóts.

Original North glamping tjöld

Þessi mynd er vel lýsandi fyrir dvölina í Þingeyjarsveitinni. Við vorum alveg hoppandi kát með hana! Við grilluðum okkur mat í þjónustuhúsinu um kvöldið, spiluðum kubb úti þar til sólin settist og þá var farið inn í tjald að spila, lita og hafa það kósý.

Glamping tjöld fyrir fjölskylduna

Næsta dag lá leiðin inn á Akureyri til að hitta vini og ættingja.

Jólahúsið og Kaffi kú

Áður en við fórum inn í bæinn tókum við klassíska hringinn og kíktum í Kaffi Kú og í Jólahúsið. Það eru skyldustopp þegar farið er norður og mjög mikilvægt að fá sér karamelluepli og karamellupopp í Jólahúsinu og anda að sér ilminum af arineldi og jólunum, ó svo dásamalegt!

Karamelluepli í Jólahúsinu

Næst héldum við af stað inn í bæ og eyddum deginum á Akureyri áður en haldið var út á Árskógsströnd að gista hjá frændfólki okkar.

Akureyri sumarfrí

Það er alltaf gaman að vera á Akureyri og ætli það sé kannski rétt sem Norðlendingarnir segja með að það sé alltaf gott veður á Akureyri? Ég bara spyr, hahaha!

Norðurland

Það er síðan alltaf best í sveitinni! Þar má hoppa, leika, veiða, tína ber og síðan er mjög mikilvægt að elda og borða nóg af góðum mat í sumarfríi!

Hvalaskoðun frá Hauganesi

Á meðan við dvöldum í sveitinni kíktum við í hvalaskoðun með stangveiði frá Hauganesi og það var alveg geggjað.

Að komast svona nálægt hvölum á svona flottum hvalaskoðunarbáti og draga glænýjan þorsk upp úr sjónum var alveg magnað!

Hvaladkoðun og sjóstangaveiði frá Hauganesi á Norðurlandi

Krakkarnir elskuðu þetta og toppurinn var síðan að fá heimabakaða kanilsnúða og heitt kakó á miðri leið.

Heitt kakó og snúður í hvalaskoðun

Ein lítil dama frekar sátt með lífið! Heitt kakó, kanilsnúður og hvalir, ég meina, hvað er hægt að biðja um meira!

Heitir pottar í fjörunni á Hauganesi

Eftir bátsferð var síðan farið í heitu pottana á Hauganesi og þar var sko fjör!

Hauganes á Norðurlandi heitur pottur

Það er ekki amalegt að enda sumarfríið á Íslandi í sól og blíðu! Takk elsku veðurguðir fyrir að gefa okkur gott veður í nokkra daga eftir alla rigningardagana þar á undan, hahahaha!

Við setjum punktinn hér í bili og vonandi hefur þessi færsla gefið ykkur góðar hugmyndir fyrir næsta frí!

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun