Djúsí súkkulaði BROWNIE



⌑ Samstarf ⌑
Brownie recipe

Almáttugur minn, þessi kaka! Sjúklega djúsí og klístruð með ríku súkkulaðibragði, alveg eins og svona kökur eiga að vera, namm!

Brownie kaka

Ef ykkur langar til þess að baka eitthvað um helgina þá mætti það sko sannarlega vera þessi kaka hér!

Djúsí súkkulaðikaka

Djúsí súkkulaði BROWNIE

  • 120 g smjör
  • 150 g dökkt súkkulaði
  • 250 g Milka Daim súkkulaði
  • 180 g púðursykur
  • 2 tsk. vanilludropar
  • 3 egg
  • 100 g hveiti
  • 100 g Oreo Crumbs
  1. Hitið ofninn í 160°C.
  2. Bræðið smjör, dökkt súkkulaði og 150 g af Milka Daim súkkulaðinu saman í potti við vægan hita. Það er allt í lagi að Daimið sé enn í bitum en þegar súkkulaðið er bráðið má slökkva á hellunni og leyfa hitanum að rjúka aðeins úr á meðan önnur hráefni eru vigtuð og undirbúin.
  3. Klæðið ferkantað bökunarmót (um 25 x 25 cm) að innan með bökunarpappír, spreyið smá matarolíuspreyi í botninn og geymið þar til deigið er tilbúið.
  4. Saxið 100 g af Milka Daim súkkulaði gróft niður og leggið til hliðar.
  5. Setjið súkkulaðiblönduna í hrærivélarskálina og hrærið púðursykri og vanilludropum saman við.
  6. Því næst má setja eggin saman við, eitt í einu og hræra og skafa niður á milli.
  7. Þá fer hveitið saman við og hrærið þar til slétt deig hefur myndast og blandið að lokum söxuðu Milka Daim súkkulaðinu varlega saman við.
  8. Hellið deiginu í bökunarmótið og stráið Oreo Crumbs yfir allt.
  9. Bakið í um 35-40 mínútur eða þar til prjónn kemur út með smá kökumylsnu á en ekki blautu deigi.
  10. Kælið kökuna alveg, lyftið henni þá upp úr með því að halda í bökunarpappírinn og skerið síðan í bita.
Milka Daim í brownie

Það voru nokkrir nágrannar sem fengu smakk af þessari og hún fékk eintóma toppdóma, enda engin furða!

Uppskrift að djúsí súkkulaðiköku

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun