Piparkökusjeik



⌑ Samstarf ⌑
Góður heimatilbúinn sjeik með jólabragði

Ójá það eru sko löngu komnar piparkökur í verslanir ef þið tókuð ekki eftir því! Við erum nú þegar búin með nokkur box og stefnum ótrauð á að halda áfram, hahaha! Það má hins vegar nota piparkökur í ýmislegt annað en það að borða þær beint upp úr boxinu.

Hér er til dæmis á ferðinni guðdómlegur sjeik með karamellu og piparkökum sem ég get lofað að mun koma ykkur skemmtilega á óvart!

Piparkökusjeik fyrir jólin

Það var í það minnsta slegist um glösin á þessu heimili svo næst geri ég beint tvöfalda uppskrift svo allir geti fengið sitt eigið glas!

Caramel and gingerbread milkshake

Piparkökusjeik

Uppskrift dugar í 2 stór glös

  • 400 g vanilluís
  • 200 ml nýmjólk
  • 12 stk. Göteborgs hjartapiparkökur (+ meira til skrauts)
  • 2 msk. karamelluíssósa (+ meira til skrauts)
  • 1 tsk. vanilludropar
  • ¼ tsk. kanill
  • 150 ml þeyttur rjómi
  1. Byrjið á því að mylja 12 piparkökur í blandaranum og setja í skál.
  2. Þeytið einnig rjómann og leggið til hliðar.
  3. Setjið þá nokkrar matskeiðar af karamellusósu í aðra skál og nuddið glasbarminum í sósuna og því næst í piparkökumulninginn til að gera fallega piparkökubrún á glasið.
  4. Hellið því næst smá af karamellusósu í hliðarnar á glasinu.
  5. Þá má útbúa sjeikinn með því að setja ís, mjólk, restina af piparkökuduftinu, 2 msk. af karamellusósu, vanilludropa og kanil í blandarann og blanda vel.
  6. Skiptið niður í glösin, toppið með vel af þeyttum rjóma og skreytið með piparkökumulningi og/eða heilli hjartapiparköku.
Göteborgs piparkökur fyrir jólin

Þessar eru svooooo góðar!

Karamellusjeik með piparkökum

Mmmm og þessi sjeik, namm!

Piparköku og karamellusjeik eða karamellusjeik með jólaívafi

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun