Bakaður ostur slær alltaf í gegn og það er gaman að prófa eitthvað nýtt í þeim efnum. Oftast hef ég bara notað þessa sultu kalda á osta og kex eða brauð en mikið sem þetta var gott svona hitað!

Bakaður ostur með Chilli og paprikusultu
- 1 x Dala hringur
- 6 msk. chilli og paprikusulta (sjá uppskrift hér að neðan)
- 2 msk. furuhnetur
- Smá saxað rósmarín til skrauts
- Hitið ofninn í 180°.
- Setjið ostinn í elfast mót, hellið sultunni yfir og bakið í um 15 mínútur.
- Stráið furuhnetum og rósmaríni yfir í lokin og berið fram með góðu kexi eða brauði.

Sulta með chilli og papriku
Þessa sultu fékk ég fyrir mörgum mörgum árum hjá Henný vinkonu og þessi sulta er hin fullkomna sulta með ostum og öðru góðgæti. Uppskriftin dugar í 6-10 krukkur (eftir stærð) og því alveg nóg að gera aðeins hálfa uppskrift til eigin nota reglulega. Hins vegar er gaman að gefa góða sultu og þessi sulta tilvalin gjöf til að senda vini með heim úr heimboði.
- 3 rauðar paprikur
- 10 rauð chilli
- 1 kg sykur
- 280 ml edik
- 30 g gult melatín (sultuhleypir, um ¾ af pokanum)
- Hreinsið fræin innan úr bæði papriku og chilli, skerið gróft niður, setjið í blandara og maukið niður.
- Setjið chilli og paprikumaukið í pott ásamt sykri og ediki og náið upp suðunni, lækkið aðeins og leyfa að malla í um 15 mínútur. Mikilvægt er að hræra reglulega í á meðan.
- Setjið sultuhleypinn út í blönduna og hrærið vel í nokkrar mínútur til viðbótar.
- Hellið í krukkur og leyfið krukkunum að standa opnum á borðinu á meðan sultan kólnar niður.
- Lokið síðan og geymið í kæli fram að notkun.

Dala Hringur klikkar ekki frekar en fyrri daginn í svona lagað, namm!
