Ef súkkulaðikaka gæti verið tilbúin á örfáum mínútum, þá væri lífið sko auðveldara! Hvað þá ef það er hægt að gera bara lítinn skammt fyrir einn eða tvo, eða bara marga sem hver og einn fengi sinn bolla! Þessi kaka uppfyllir þessa drauma og gott betur en það, það tekur örfáar mínútur að hræra í hana og baka og þið eruð komin með ylvolga súkkulaðiköku sem toppa má með ís og súkkulaðisósu til að gera gott enn betra, BOOM!

Mmmm…..ég mæli sko sannarlega með því að þið prófið þessa snilld!

Súkkulaðikaka í bolla
1 stór bolli eða 2 minni
- 30 g Swiss Miss Milk Chocolate kakóduft
- 40 g hveiti
- 1 msk. púðursykur
- ½ tsk. matarsódi
- 50 ml nýmjólk
- 50 ml matarolía
- 1 tsk. vanilludropar
- PAM matarolíusprey
- Ís og súkkulaðisósa
- Hrærið þurrefnin saman í skál.
- Hellið nýmjólk, matarolíu og vanilludropum saman við og pískið saman þar til kekkjalaust.
- Spreyið stóran bolla (eða tvo minni) að innan með PAM matarolíuspreyi og hellið deiginu þar í.
- Bakið stóran bolla í örbylgjuofni á hæstu stillingu í 1 ½ mínútu, minni bolla í 1 mínútu. Athugið að örbylgjuofnar eru mismunandi og þið gætuð þurft að aðlaga tímann aðeins. Þið viljið að kakan sé aðeins blaut í miðjunni en bökuð í köntunum.
- Leyfið hitanum aðeins að rjúka úr og toppið með ís og súkkulaðisósu.

Hver elskar ekki Swiss Miss! Ég veit í það minnsta að ég geri það og ætla alveg að játa það á mig að ég veiði alltaf sykurpúðana vel upp úr fyrir hvern skammt, hahaha! Það má hins vegar líka nota Swiss Miss kakóið í súkkulaðiköku, smákökur og alls konar sniðugt!
