Það má svo sannarlega stundum stytta sér leið þegar kemur að matseldinni, hvort sem um er að ræða hátíðir eða annað! Sumir hafa einfaldlega ekki tíma til að fara lengri leiðina og aðrir ekki áhuga. Því er gott að vita af ýmsum möguleikum sem geta létt undir líkt og að nýta grjónagrautinn frá TORO á þennan hátt fyrir hinn fullkomna hátíðar möndlugraut!

Þennan möndlugraut er afar einfalt að útbúa og ég mæli með því að þið prófið!

Möndlugrautur uppskrift
Fyrir um 6 manns
- 2 pakkar TORO grjónagrautur
- 1,3 lítrar nýmjólk
- 1 msk. smjör
- 200 ml léttþeyttur rjómi
- Kirsuberjasósa
- Ristaðar möndluflögur
- Hrærið grjónagrautsbréfunum saman við mjólkina og náið upp suðu, lækkið þá hitann og leyfið að malla í 5-7 mínútur.
- Takið af hellunni, hrærið smjörinu saman við og leyfið grautnum að kólna niður.
- Blandið léttþeytta rjómanum næst varlega saman við grautinn með sleikju, setjið smá graut í falleg glös, smá kirsuberjasósu yfir, aftur smá graut og aftur kirsuberjasósu.
- Toppið með ristuðum möndluflögum og njótið.

Það er hefð yfir hátíðirnar að bera hann fram með kirsuberjasósu en það er líka gott að útbúa karamellusósu eða eins og dætur mínar vilja hann helst, bara með kanilsykri!
