Ris a la mande er algjör klassík þegar hátíðirnar nálgast. Flestir þekkja þennan rétt borinn fram með kirsuberjasósu en undanfarin ár hefur karamellusósa með þessari uppskrift hins vegar notið mikilla vinsælda. Hér kemur því undursamleg útfærsla af Ris a la mande með karamellusósu með kanilkeim, namm!

Hér fyrir neðan sjáið þið myndband sem ég vann í samvinnu við Gerum daginn girnilegan. Það er lítið mál að útbúa Ris a la mande og þessi karamellusósa er algjört sælgæti!
Ris a la mande uppskrift
Uppskrift dugar í um 10 glös/skálar (eftir stærð)
Möndlugrautur uppskrift
- 330 g Tilda Long Grain hrísgrjón (ósoðin)
- 1, 6 l nýmjólk
- 2 vanillustangir
- 1 msk. smjör
- 2 msk. sykur
- ½ tsk. salt
- 250 ml rjómi
- 70 g flórsykur
- Bræðið smjörið í stórum potti og hellið mjólkinni næst saman við og hitið að suðu.
- Þá má hræra hrísgrjónunum saman við og gott er að hræra nokkrum sinnum í þeim fyrstu mínúturnar til að þau festist síður við botninn.
- Lækkið hitann vel niður og bætið sykri og salti í pottinn.
- Skafið fræin úr vanillustöngunum og bætið saman við og leyfið stöngunum sjálfum að malla með í pottinum (takið þær síðan úr í lokin).
- Grauturinn má malla við vægan hita í um 40 mínútur og gott er að hræra í honum nokkrum sinnum á meðan.
- Grautinn þarf síðan að kæla áður en öðrum hráefnum er hrært saman við hann. Hægt er að útbúa grautinn sjálfan deginum áður og geyma í kæli.
- Léttþeytið saman rjóma og flórsykur og vefjið varlega saman við kældan grautinn. Gott er að brjóta grautinn fyrst upp með gaffli.
- Setjið graut í fallegar skálar/glös og karamellusósu og möndluflögur yfir.
Karamellusósa og skraut
- 200 g Dumle karamellur
- 100 ml rjómi
- 100 g ristaðar möndluflögur
- Bræðið karamellur og rjóma saman í potti við meðalháan hita þar til slétt karamellusósa hefur myndast.
- Leyfið karamellusósunni að ná stofuhita áður en hún er sett yfir grautinn, toppið með ristuðum möndluflögum.

Mmm þessa uppskrift verða allir að prófa!
