Marengstertur henta við öll tækifæri, allir þær elska og þær eru tiltölulega einfaldar í framkvæmd. Hér er á ferðinni algjör bomba sem fékk einróma lof í matarboði hjá okkur á dögunum. Það er því óhætt að mæla með þessari ljúffengu köku í eftirrétt, í veisluna eða hvað eina.

Það er ekki hægt að fá leið á marengs, það er bara þannig. Það er endalaust hægt að leika sér með slíkar kökur, hafa þær litlar, stórar, með berjum, með nammi og allt þar á milli. Eitt er þó víst að engin er marengsterta án rjóma! Hann spilar lykilhlutverk í slíkum kökum, alltaf!

Hér er ég búin að útbúa nokkurs konar marengskrans úr púðursykurmarengs og á milli er hindberjarjómi og lakkríssósa.

Marengskrans uppskrift
Marengs uppskrift
- 5 eggjahvítur
- 240 g púðursykur
- 2 tsk. kartöflumjöl
- 2 tsk. hvítvínsedik
- Hitið ofninn í 120°C.
- Teiknið tvo eins hringi á bökunarpappír með gati í miðjunni, setjið á sitthvora bökunarplötuna.
- Þeytið eggjahvíturnar á meðalhraða þar til þær fara aðeins að freyða.
- Aukið þá hraðann og bætið sykrinum saman við í litlum skömmtum.
- Kartöflumjöl og hvítvínsedik má fara saman við í lokin og þeytið þar til marengsinn er stífþeyttur og topparnir halda sér.
- Bakið í eina klukkustund og leyfið að kólna með ofninum.
- Setjið lakkríssósu og rjómafyllingu á milli og skreytið.
Lakkríssósa uppskrift
- 1 poki Bingókúlur
- 5 msk. rjómi frá Gott í matinn
- Bræðið saman í potti og leyfið að ná stofuhita áður en sett er á marengsinn.
Fylling og samsetning
- 500 ml þeyttur rjómi frá Gott í matinn
- 125 g maukuð hindber
- Ber og blóm til skrauts
- Dreifið úr lakkríssósu yfir neðri marengsinn með því að renna skeið fram og tilbaka. Ekki þekja alveg heldur nota rúmlega helming sósunnar í þetta.
- Blandið maukuðum hindberjum saman við þeytta rjómann með sleikju, setjið á milli marengshringjanna.
- Dreifið úr restinni af lakkríssósunni og skreytið með blómum og berjum.

Mæli með að þið prófið þessa dásemd!
