Batman Oreokaka



⌑ Samstarf ⌑
Oreo kaka

Það er alltaf gaman að gera þemakökur, hvort sem það er fyrir afmæli eða eitthvað allt annað. Þessi kaka varð til sökum þess að ný BATMAN mynd verður frumsýnd 04.03.22 og sérútgáfa af OREO Original kexinu hefur verið framleidd í takmörkuðu magni sem OREO & BATMAN kex með andlitsmynd af BATMAN.

Afmæliskaka uppskrift

Batman er síðan að sjálfsögðu fígúra sem hefur lifað með okkur lengi svo þetta er sannarlega einföld lausn á slíkri þemaköku fyrir aðdáendur!

Stráka og stelpu afmæliskaka með Oreo

Batman kaka

Súkkulaði botnar

  • 240 g hveiti
  • 350 g sykur
  • 60 g Cadbury bökunarkakó
  • 30 g mulið BATMAN & OREO kex (duft)
  • 2 tsk. matarsódi
  • 1 tsk. salt
  • 4 egg
  • 250 ml súrmjólk
  • 150 ml matarolía
  • 1 tsk. vanilludropar
  • 150 ml heitt kaffi
  • 100 ml heitt vatn
  • PAM matarolíusprey
  1. Hitið ofninn í 170°C.
  2. Hrærið saman öllum þurrefnum í eina skál og leggið til hliðar.
  3. Pískið eggin og blandið súrmjólk, olíu og vanilludropum saman við.
  4. Hellið vökvanum varlega saman við þurrefnin og einnig heitu kaffi og vatni og hrærið rólega á meðan. Skafið niður á milli og blandið vel (deigið er þunnt og á að vera þannig).
  5. Takið til 4 x 15 cm smelluform, setjið bökunarpappír í botninn og spreyið vel með matarolíuspreyi.
  6. Skiptið deiginu jafnt á milli formanna (um 370 g í hvert) og bakið í um 30-35 mínútur eða þar til prjónn kemur út með smá kökumylsnu á en ekki blautu deigi.
  7. Kælið alveg og skerið svo ofan af botnunum svo þeir verði alveg sléttir áður en þið skreytið.

Smjörkrem og skreyting

  • 250 g smjör við stofuhita
  • 150 g Philadelphia rjómaostur við stofuhita
  • 900 g flórsykur
  • 30 ml rjómi
  • 2 tsk. vanillusykur
  • Kökuskraut (til að skreyta með neðst)
  • Gulur matarlitur
  1. Þeytið smjör og rjómaost saman í nokkrar mínútur, skafið niður á milli.
  2. Bætið flórsykri, rjóma og vanillusykri saman við í nokkrum skömmtum og skafið vel niður, bætið matarlit saman við og blandið áfram vel.
  3. Smyrjið um 1 cm þykku lagi á milli botna og grunnhjúpið kökuna fyrst með örþunnu lagi af kremi allan hringinn (til að binda kökumylsnu) og setjið í kæli í um 15 mínútur.
  4. Setjið þá næsta lag af kremi sem má vera aðeins þykkara (um ½ cm) og sléttið hliðar og topp eftir fremsta megni.
  5. Setjið kökuskraut í lófann og klappið neðst upp með hliðunum áður en kremið tekur sig (storknar). Gott að hafa ofnskúffu undir til að grípa það kökuskraut sem hrynur af og endurnýta það síðan.
  6. Kælið kökuna aftur í um 15 mínútur áður en þið setjið ganaché á toppinn.

Ganaché og lokaskreyting

  • 100 g svart hjúpsúkkulaði (fæst t.d í Allt í köku)
  • 60 ml rjómi
  • 8 x BATMAN & OREO kexkökur
  • Smjörkrem (restin frá því áðan)
  1. Hitið rjómann að suðu og hellið yfir súkkulaðið.
  2. Pískið saman þar til allt súkkulaðið er bráðið, hrærið þar til byrjar aðeins að þykkna og hellið óreglulega yfir toppinn í nokkrum skömmtum, ýtið örlitlu magni fram af brúninni allan hringinn með kökuspaða, kælið í um 15 mínútur áður en þið klárið að skreyta.
  3. Sprautið smjörkremstoppa, til dæmis með stút 2D frá Wilton og fyllið upp í bilið á milli kremtoppanna með kexinu.  
Batman Oreo kex

Batman kexið er skemmtileg útgáfa af dásamlega OREO kexinu, mínum dömum fannst þetta í það minnsta mjög spennandi og nú er bara að bíða eftir því að myndin komi út!

Oreo Batman kaka

Mmm…..djúsí og góð súkkulaðikaka!

Batman kaka

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun