Það er fátt sem toppar heita brauðrétti í veislum. Þeir eru sívinsælir og oft það fyrsta sem klárast því allir þá elska. Fermingar eru framundan og heitir réttir sniðugir í slíkar veislur og hér kemur einn sem sló heldur betur í gegn, bæði hjá ungum sem öldnum.

Það skiptir mestu máli að mínu mati að hafa réttinn djúsí og matarmikinn. Að þessu sinni prófaði ég að mylja paprikusnakk yfir allt í lokin og namm það var alveg svakalega gott!

Mmmm….

Heitur brauðréttur með pepperoni, skinku og krönsi
Uppskrift dugar í 2 frekar grunn föt/mót
- 14 hvítar brauðsneiðar
- 1 rauð paprika
- 1 Mexíkó kryddostur
- 1 Pepperoni kryddostur
- 100 g Philadelphia rjómaostur með sweet chili
- 700 ml rjómi
- 200 g skinka
- 80 g pepperoni (mini)
- Rifinn ostur
- Um ½ poki Maarud Potetgull með papriku
- Ólífuolía til steikingar
- Salt og pipar
- Hitið ofninn í 180°C.
- Penslið tvö eldföst mót að innan með ólífuolíu/smjöri.
- Skerið skorpuna af brauðinu og rífið niður í bita yfir botninn á hvoru formi.
- Skerið paprikuna smátt og steikið upp úr ólífuolíu, saltið og piprið eftir smekk.
- Hellið helming rjómans á pönnuna, rífið báða kryddostana út í og blandið rjómaostinum líka saman við.
- Hrærið þar til ostar hafa bráðnað og bætið þá restinni af rjómanum á pönnuna og hrærið vel.
- Skerið skinkuna niður og dreifið yfir brauðið í forminu ásamt pepperoni.
- Hellið sósunni jafnt yfir brauðblönduna í hvoru formi fyrir sig, toppið með rifnum osti og bakið í 20 mínútur.
- Takið þá út, myljið snakkið gróft yfir og hitið í um 5 mínútur til viðbótar.

Maarud snakkið stendur alltaf fyrir sínu og er eitt af mínu uppáhalds snakki! Mín litla 4 ára er líka svakalega hrifin af paprikusnakkinu og ég þurfti alveg að stoppa hana af til að eiga nóg fyrir réttinn, hahaha!

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.