Vantar þig eitthvað til þess að narta í á milli mála? Þessir orkuboltar eru ÆÐI og gefa góða orku. Þessar kúlur eru einnig fullkomnar í nesti í bakpokann í gönguferðum!

Það er fljótlegt að búa þá til og síðan er gott að eiga svona í frystinum/kælinum til að grípa í þegar hungrið kallar.

Ég mæli með eplabitum og orkuboltum saman, það var fullkomin tvenna!

Orkuboltar
- 200 g Til hamingju saxaðar döðlur
- 120 ml vatn (soðið)
- 100 g Til hamingju tröllahafrar
- 40 g Til hamingju kókosmjöl
- 40 g Til hamingju pekanhnetur
- 50 g kókosolía (brædd)
- 100 g hnetusmjör
- 1 tsk. vanilludropar
- 1 msk. bökunarkakó
- ½ tsk. salt
- Hellið sjóðandi vatninu yfir döðlurnar og leyfið þeim að liggja í því í um 30 mínútur á meðan annað er undirbúið.
- Setjið tröllahafrana í blandarann og maukið niður í duft, hellið í stóra skál.
- Setjið næst kókosmjöl og pekanhnetur í blandarann og maukið einnig niður í kurl, bætið við í skálina með hafraduftinu.
- Bætið bræddri kókosolíu, hnetusmjöri, vanilludropum, bökunarkakói og salti í skálina og hnoðið allt saman með höndunum (eins og þið séuð að gera kókoskúlur).
- Setjið skálina þá í kælinn í um klukkustund (til að auðveldara verði að rúlla boltana/kúlurnar).
- Rúllið í orkubolta að þeirri stærð sem þið óskið og geymið í lokuðu íláti í kæli.

Mmmm, mæli með að þið prófið!