Það er svo gaman að prófa eitthvað nýtt og ég elska bæði hrískökur og marengs svo hér kemur algjör negla!

Ég ákvað að prófa að nota formkökuform í stað þess að notast við hringlaga og þetta kom virkilega skemmtilega út svona, líka mjög þægilegt að skera sneiðar á þennan hátt.

Síðan elska allir hrískökur svo ég gerði stærri uppskrift en þurfti í formið til þess að geta gert nokkur hreiður líka og þetta var ansi vinsælt í fjölskyldukaffinu á þessu heimili!

Það er síðan geggjað að setja Dumle karamellur í hrískökuuppskriftina, namm sko!

Páskaljúfmeti
Þessi uppskrift gefur eina ílanga páskaköku með hrískökubotni, bananarjóma, marengs og páskaeggjarjóma ásamt 10-12 páskahreiðrum sem fylla má með súkkulaðieggjum.
Marengsbotn uppskrift
- 2 eggjahvítur
- 100 g púðursykur
- Hitið ofninn í 120°C og klæðið formkökuform að innan með bökunarpappír.
- Þeytið saman eggjahvítur og púðursykur þar til stífþeytt.
- Setjið í formkökuformið og bakið í 40 mínútur.
- Leyfið marengsinum að kólna áður en þið lyftið honum uppúr í bökunarpappírnum og setjið kökuna saman.
- Best finnst mér að gera marengsinn deginum áður ef ekki fyrr og geyma hann á þurrum stað.
Hrískökubotn og hreiður
- 60 g smjör
- 250 g dökkt súkkulaði
- 70 g Dumle karamellur
- 180 g sýróp (í grænu dósunum)
- 160 g Rice Krispies
- PAM matarolíusprey
- Pressið bökunarpappír niður í ílangt formkökuform og leggið til hliðar.
- Spreyið smá PAM í ál-bollakökuform (í 10-12 hólf).
- Setjið allt nema Rice Krispies í pott, hitið þar til bráðið og leyfið blöndunni aðeins að „bubbla“ við háan hita áður en þið takið af hellunni.
- Leyfið þá hitanum aðeins að rjúka úr blöndunni og blandið Rice Krispies saman við.
- Setjið tæplega helminginn í formkökuformið, þjappið aðeins niður og sléttið. Formið sem ég notaði er frá ömmu, 11 x 29 cm að stærð en auðvitað má nota aðeins minna/stærra.
- Setjið síðan kúpta matskeið af blöndu í hvert bollakökuhólf og þrýstið miðjunni niður og aðeins upp kantana með skeið.
- Kælið hvorutveggja á meðan þið útbúið fyllinguna.
Karamellusósa uppskrift
- 120 g Dumle karamellur
- 60 ml rjómi
- Bræðið saman þar til kekkjalaust, leyfið að ná stofuhita áður en sósan er notuð á kökuna.
Fylling, skraut og samsetning
- 400 g þeyttur rjómi
- 1 banani
- 4-5 pokar Cadbury mini eggs
- Skerið bananann í litla bita og blandið saman við um 2/3 af rjómanum.
- Skerið einn súkkulaðieggjapoka gróft niður.
- Leggið ílanga hrískökubotninn á fallegan disk og smyrjið bananarjómanum yfir hann og setjið síðan smá karamellusósu þar yfir.
- Næst fer marengsbotninn ofan á og restin af þeytta rjómanum.
- Hér má setja vel af karamellusósu yfir rjómann og skreyta síðan með niðurskornu súkkulaðieggjunum og nokkrum heilum.
- Notið restina af súkkulaðieggjunum til að fylla hrískökuhreiðrin.

Hver elskar ekki þessi egg!!! Það er eitthvað við krönsí skelina utan á og svo ljúffenga súkkulaðið inn í sem fær mann til laumast alltaf í meira!

Mmmm….

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan