Kjúklingaspjót og fylltir sveppir



⌑ Samstarf ⌑
Grillmatur uppskrift

Það er svo mikið vor í lofti þessa dagana að ég er komin með grillið í stuð aftur! Hér eru á ferðinni kjúklingaspjót og undurljúffengir rjómaostafylltir sveppir með frönskum og kaldri sósu.

Fylltir sveppir

Ég er alltaf að verða hrifnari af því að nota kjúklingalærakjöt í stað þess að nota bringur eða lundir því mér finnst það kjöt einfaldlega alltaf verða meira djúsí.

Grilluð kjúklingaspjót

Það passaði síðan vel að hafa sætkartöflufranskar og kalda sósu með þessu.

Rjómaostafylltir sveppir

Kjúklingaspjót og fylltir sveppir

Fyrir 4-5 manns

Kjúklingaspjót uppskrift

  • 1 poki (um 900 g) Rose Poultry úrbeinuð kjúklingalæri
  • 100 ml Caj P grillolía – Honey
  • 100 ml Caj P grillolía – Original
  1. Skerið hvert kjúklingalæri í tvo hluta.
  2. Setjið kjúklinginn í skál og veltið upp úr grillolíunum og leyfið að marinerast í að minnsta kosti klukkustund (yfir nótt er líka í lagi).
  3. Þræðið upp á grillteina og grillið á vel heitu grilli í nokkrar mínútur á hvorri hlið þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn.

Fylltir sveppir

  • 10 meðalstórir sveppir
  • 1 dós Philadelphia rjómaostur með hvítlauk og kryddjurtum.
  • Hunang og graslaukur yfir í lokin.
  1. Takið stilkinn úr sveppunum og skafið aðeins innan úr þeim.
  2. Fyllið með rjómaosti og raðið á álpakka/eldfast mót sem má fara á grill (einnig má þetta fara í 200°C heitan ofn).
  3. Setjið á efri grindina á grillinu á meðan þið grillið kjúklinginn (í um 10 mínútur).
  4. Setjið smá hunang og saxaðan graslauk yfir áður en sveppirnir eru bornir fram.

Annað meðlæti

  • Sætkartöflufranskar (keyptar tilbúnar og eldaðar)
  • Heinz hvítlaukssósa (keypt tilbúin í flösku)
Philadelpiha rjómaostur í sveppina

Það má síðan að sjálfsögðu leika sér með bragðtegundir af rjómaosti í sveppafyllinguna.

Grilluð kjúklingaspjót og fylltir sveppir

Mmmm……

Stella Artois með grillinu

Ísköld Stella fór síðan einstaklega vel með þessu öllu saman!

Grillaður kjúklingur og köld sósa

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun