Skyrkökur eru eitthvað sem enginn stenst. Ég þori varla að viðurkenna það en ég hef aldrei áður gert skyrköku með matarlími sem hægt er að skera í sneiðar, alltaf bara í stóra skál eða lítil glös. Ég hef hins vegar gert ótal ostakökur á þennan máta svo það var sannarlega kominn tími til að prófa. Látið matarlímið alls ekki hræða ykkur, það er ekkert mál að nota það, bara fylgja uppskriftinni!

Mmmm….

Skyrkaka uppskrift
Botn
- 260 g hafrakex
- 100 g brætt smjör
- Setjið bökunarpappír í botninn á um 20-22 cm smelluformi.
- Myljið hafrakex í blandara þar til það er orðið duftkennt.
- Blandið bræddu smjöri saman við og þjappið í botninn á smelluforminu, setjið í frystinn á meðan þið útbúið fyllinguna.
Fylling
- 350 ml rjómi
- 2 msk. flórsykur
- 2 tsk. vanillusykur
- 500 g KEA skyr með jarðarberjum og bláberjum
- 5 matarlímsblöð
- 50 ml mjólk
- Leggið matarlímsblöðin í bleyti í kalt vatn í nokkrar mínútur.
- Hitið mjólkina í potti, takið matarlímsblöðin upp úr vatninu, eitt í einu og vindið út í heita mjólkina. Hrærið vel á milli hvers og þegar blöðin eru öll uppleyst má hella blöndunni í skál og leyfa hitanum að rjúka úr á meðan þið undirbúið annað.
- Þeytið rjóma, flórsykur og vanillusykur saman.
- Vefjið skyrinu saman við rjómablönduna og hellið næst matarlímsblöndunni í mjórri bunu saman við og blandið vel saman.
- Hellið yfir kexbotninn í smelluforminu og setjið í kæli í að minnsta kosti 5 klukkustundir eða yfir nótt.
- Skerið síðan meðfram hringnum á forminu að innan áður en þið losið hliðarnar frá og flytjið kökuna yfir á fallegan disk.
Skreyting
- Ber eftir eigin ósk
- Saxað suðusúkkulaði

Elín Heiða dóttir mín elskar skyrkökuna hennar Heiðu frænku þar sem einmitt þetta skyr er líka notað en sett saman með öðru kexi og á annað máta. Það er hægt að gera ótal útgáfur af skyrkökum og alltaf virðast þær slá í gegn.
