Bollakökur með súkkulaði- og heslihnetukremi



⌑ Samstarf ⌑
Bollakökur uppskrift

Hér eru á ferðinni undursamlegar bollakökur þar sem búið er að bæta Royal súkkulaðibúðing út í deigið til að gera kökurnar extra djúsí og góðar. Ég ákvað síðan að prófa að fara aðeins út af sporinu varðandi súkkulaðikremið og bæta súkkulaði- og heslihnetukremi saman við og útkoman varð alveg hreint stórkostleg.

Góðar bollakökur uppskrift

Súkkulaði með súkkulaði það getur bara ekki klikkað!

Bollakökur með súkkulaðikremi

Bollakökur með súkkulaði- og heslihnetukremi

18-20 stykki

Bollakökur uppskrift

  • 70 g smjör við stofuhita
  • 250 g sykur
  • 2 egg
  • 2 tsk. vanilludropar
  • 230 ml nýmjólk
  • 150 g hveiti
  • 60 g bökunarkakó
  • 2 tsk. Royal lyftiduft
  • ½ tsk. matarsódi
  • ¼ tsk. salt
  • 1 súkkulaði Royal búðingur (duftið)
  • 150 g súkkulaðidropar (dökkir)
  1. Hitið ofninn í 170°C og takið til ál-bollakökuform og setjið pappaform ofan í.
  2. Þeytið saman smjör og sykur þar til létt og ljóst.
  3. Bætið eggjunum saman við ásamt vanilludropum, einu eggi í einu, skafið og þeytið á milli.
  4. Blandið öllum þurrefnunum saman í eina skal fyrir utan súkkulaðið og setjið út í eggjablönduna til skiptis við mjólkina.
  5. Skafið niður eftir þörfum og hrærið stutta stund.
  6. Blandið að lokum súkkulaðidropunum saman við með sleikju.
  7. Skiptið niður í bollakökuformin (fyllið um 2/3 af forminu) og bakið í um 20 mínútur.
  8. Kælið áður en þið smyrjið kreminu á.

Súkkulaði- og heslihnetukrem

  • 100 g smjör við stofuhita
  • 80 g súkkulaði- og heslihnetusmjör við stofuhita
  • 1 tsk. vanilludropar
  • 30 g bökunarkakó
  • 100 ml rjómi
  • 300 g flórsykur
  1. Blandið öllu saman í skál, þeytið og skafið niður eftir þörfum þar til létt súkkulaðikrem hefur myndast. Gott er að setja flórsykurinn saman við í nokkrum skömmtum.
  2. Smyrjið vænni matskeið af kremi á hverja bollaköku.
Bollakökur með Royal súkkulaðibúðing

Það er alveg magnað hvað Royal búðingurinn gerir mikið fyrir kökurnar!

Bollakökur uppskrift

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun