Það er svo geggjað að geta útbúið sína eigin skyrskál heima og möguleikarnir eru endalausir! Þetta er alls ekki eins flókið og margir halda svo lengi sem þið eigið réttu hráefnin til! Ég hugsa að það taki í mesta lagi um 5 mínútur að útbúa eina eða fleiri svona skálar heima, líklega styttri tími en það tekur að bíða í röð á sölustað!

Corny Smoothie er nýja uppáhalds millimálið mitt og hér ákvað ég að blanda því saman við vanilluskyr á þrjá vegu og útbúa þannig undursamlegar skyrskálar sem kláruðust allar á núlleinni á þessu heimili!

Hollustuskál
Hér koma tillögur af 3 mismunandi bragðtegundum
Fyrir skyrgrunn má hræra saman skyri og Corny Smoothie og setja í skál.
Fyrir topp má skera niður ávexti/annað og Corny og setja ofan á og setja síðan um eina teskeið af kókos- og möndlusmjöri yfir allt.
Skyrgrunnur
- 300 g vanilluskyr
- Corny Smoothie með banana, hindberjum, bláberjum og höfrum
Toppur
- Granóla
- Banani
- Hindber
- Bláber
- Rapunzel kókos- og möndlusmjör
- ½ stk. Corny með súkkulaði

Skyrgrunnur
- 300 g vanilluskyr
- Corny Smoothie með mangó, perum og höfrum
Toppur
- Granóla
- Mangó
- Perur
- Rapunzel kókos- og möndlusmjör
- ½ stk. Corny með súkkulaði

Skyrgrunnur
- 300 g vanilluskyr
- Corny Smoothie með eplum, ananas, kókos og höfrum
Toppur
- Granóla
- Epli
- Ferskur ananas
- Ristaðar kókosflögur
- Rapunzel kókos- og möndlusmjör
- ½ stk. Corny með súkkulaði

Nammi nammi namm, þetta er alveg geggjað!
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!