Spicy skinkuhorn



⌑ Samstarf ⌑
Skinkuhorn uppskrift

Ég setti inn á story á Instagram þegar ég útbjó þessi skinkuhorn um daginn og það eru sko klárlega nokkrir búnir að bíða spenntir eftir að uppskriftin birtist hér inni. Það fór meira að segja þannig að nokkrir gátu ekki beðið og fengu skjalið sent til sín strax og ég hafði sett það upp í tölvunni, hahaha!

Spicy skinkuhorn

Það elska allir skinkuhorn! Hér er ég bæði að prófa mig áfram með deig með hreinu skyri sem kom alveg ótrúlega vel út og svo ákvað ég líka að prófa að setja mexíkóost með skinkumyrjunni og toppa með osti og chilli pizzakryddi. Þessi útkoma er dásamleg og skemmtileg tilbreyting frá þeim klassísku!

Skinkuhorn með osti inn í

Spicy skinkuhorn

Skinkuhorn uppskrift

64 stykki

  • 1080 g hveiti
  • 2 pk. þurrger (2 x 11,8g)
  • 50 g sykur
  • 2 tsk. salt
  • 4 egg
  • 260 g hreint Ísey skyr
  • 110 g smjör við stofuhita
  • 250 ml volgt vatn

Fylling og toppur

  • 3 x Skinkumyrja
  • 2 x Mexíkó kryddostur
  • Rifinn pizzaostur frá Gott í matinn
  • 1 egg + 3 msk Nýmjólk til að pensla með
  • Chilli-pizzakrydd (eða annað krydd sem hentar)

  • Setjið þurrefnin í hrærivélarskálina og blandið saman með króknum.
  • Pískið saman egg og skyr og bætið út í ásamt smjöri og volgu vatni.
  • Hnoðið stutta stund og færið svo yfir á borðið og hnoðið betur.
  • Penslið stóra skál með matarolíu og setjið deigkúluna þar ofan í og veltið henni um svo hún hjúpist öll olíunni.
  • Plastið skálina og leyfið deiginu að hefast í klukkustund (það ætti að tvöfalda stærð sína).
  • Skiptið þá niður í 8 hluta, fletjið hvern út í hring og skerið í 8 sneiðar með pizzuskera.
  • Setjið góða teskeið af Skinkumyrju á hvern hluta ásamt smá Mexíkóosti, rúllið upp, lokið endunum og raðið á bökunarplötur.
  • Pískið saman egg og Nýmjólk og penslið skinkuhornin, setjið næst rifinn ost yfir og smá krydd.
  • Bakið við 190° í 10-13 mínútur eða þar til hornin fara að gyllast.
Isey skyr í deiguppskrift

Það kom virkilega vel út að setja skyr í deigið, það varð létt og ljúffengt, alveg eins og best verður á kosið.

Góð skinkuhorn

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun