Ég var svo heppin á dögunum að fá bókina Lifðu til fulls eftir hana Júlíu Magnúsdóttur. Þar er að finna ógrynni af góðum uppskriftum sem allar eru hollar og orkumiklar.

Ég stóðst ekki mátið með Snickers molana enda er ekki amalegt að hafa hollari útgáfu af slíkum við hendina til að grípa í þegar sætindaþörfin hellist yfir.

Ég útfærði uppskriftina örlítið til eftir þeim hráefnum sem ég átti til á heimilinu en útkoman var alveg dásamleg og gott að eiga þessa bita í frystinum.

Snickersmolar uppskrift
Um 16 bitar
Botn
- 120 g Til hamingju döðlur
- 100 g Til hamingju möndlur með hýði
- 3o g Til hamingju gróft kókosmjöl
- 15 g bökunarkakó
- ¼ tsk. salt
- ½ tsk. vanilludropar
- Hellið sjóðandi vatni yfir döðlurnar og leyfið þeim að mýkjast upp í um 30 mínútur, pressið vatnið þá af þeim.
- Klæðið eldfast mót með bökunarpappír, ég notaði 20 x 20 cm stórt form.
- Setjið næst öll hráefnin í blandara/matvinnsluvél og maukið niður.
- Ég notaði blandarann því ég nennti ekki að ná í matvinnsluvélina og það var smá þolinmæðisverk, skóf eflaust 20 x niður og mixaði upp á nýtt en það hafðist engu að síður.
- Hellið í eldfasta formið, þjappið niður og geymið í frysti á meðan þið útbúið kremið.
Karamellukrem + hnetusmjörslag
- Um 150 g gróft hnetusmjör
- 120 g Til hamingju döðlur
- 60 g kókosolía (brædd)
- ¼ tsk. salt
- ½ tsk. vanilludropar
- Hellið sjóðandi vatni yfir döðlurnar og leyfið þeim að mýkjast upp í um 30 mínútur, pressið vatnið þá af þeim.
- Setjið döðlur, kókosolíu, salt og vanilludropa í blandarann og maukið þar til nokkuð slétt og mjúk áferð myndast.
- Takið botninn úr frystinum, smyrjið fyrst hnetusmjöri yfir botninn og næst karamellukremslaginu.
- Setjið aftur í frysti á meðan þið útbúið súkkulaðihjúpinn.
Súkkulaðihjúpur
- 30 g bökunarkakó
- 50 g kókosolía (brædd)
- 1 tsk. döðlusýróp
- Til hamingju gróft kókosmjöl til að strá yfir
- Pískið allt saman í skál þar til slétt og fínt, smyrjið þá yfir karamellukremið.
- Frystið aftur í að minnsta kosti 3 klukkustundir eða yfir nótt, skerið í bita og geymið í frysti/kæli fram að notkun.

Mmm…..mæli með að þið nælið ykkur í þessa bók ásamt því að fylgjast með því sem Júlía brallar á síðunni sinni Lifðu til fulls.
