Snickersterta



Marengsterta með Snickers

Þegar við bjuggum í Seattle kom Stebbi vinur okkar einu sinni með Snickers köku í partý. Ég er búin að vera á leiðinni að útbúa slíka síðan þá og ekki spyrja mig hvernig tíu ár liðu án þess að svo væri gert!

Góð marengskaka

Ég fór að reyna að finna uppskriftina frá honum en ekkert gekk svo ég gúglaði þetta aðeins og sá köku sem leit út alveg eins og hans á vef Mannlífs síðan einhvern tímann fyrir löngu. Ég notaðist því við þá uppskrift með smá tilfæringum, eins og gengur og gerist þegar ég prófa uppskriftir frá öðrum, hahaha!

Marengsbomba

Útkoman var alveg hreint stórkostleg og þetta klárlega með betri marengstertum allra tíma!

Góð marengsterta með Snickers og rjóma

Snickersterta uppskrift

Marengsbotnar uppskrift

  • 5 eggjahvítur
  • 280 g púðursykur
  1. Hitið ofninn í 130°C og teiknið tvo hringi á sitthvorn bökunarpappírinn sem eru 20-22 cm í þvermál, leggið á bökunarplötur/ofnskúffur.
  2. Þeytið næst saman hvítur og sykur þar til stífþeytt (nokkrar mínútur).
  3. Skiptið blöndunni jafnt niður inn í hringina sem þið teiknuðuð, sléttið úr og jafnið eftir hringnum.
  4. Bakið í 60 mínútur og slökkvið á ofninum og leyfið marengsinum að kólna með honum.

Fylling

  • 500 ml þeyttur rjómi
  • 100 g Snickers (2 stykki) skorin smátt
  • 30 g suðusúkkulaði saxað
  1. Blandið öllu varlega saman með sleikju og setjið á milli botnanna.

Súkkulaðikrem á toppinn

  • 50 g smjör
  • 100 g Snickers (2 stykki) skorin smátt
  • 100 g suðusúkkulaði saxað
  • 5 eggjarauður
  • 50 g flórsykur
  • Salthnetur
  1. Bræðið saman smjör, Snickersbita og suðusúkkulaði. Skiljið smá af Snickersinu eftir til að strá yfir í lokin. Hrærið vel við meðalháan hita þar til bráðið og takið þá af hellunni og leyfið hitanum að rjúka úr.
  2. Þeytið eggjarauður og flórsykur þar til létt og þétt blanda myndast (nokkrar mínútur).
  3. Blandið þá súkkulaðiblöndunni varlega saman við með sleikju og setjið yfir marengskökuna, toppið með Snickersbitum og salthnetum.
  4. Kremið mun leka niður hliðarnar svo ekki er verra að hafa stóran kökudisk undir eða kökudisk með köntum til að grípa allt gúmelaðið.
  5. Því er gott að koma kökunni í kæli um leið og kreminu hefur verið smurt á hana og leyfa síðan kökunni að standa í nokkrar klukkustundir áður en hennar er notið.
Snickersterta

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun