Espresso Martini með súkkulaðikeim



⌑ Samstarf ⌑
Espresso martini

Helgardrykkurinn er klár!

espresso martini með súkkulaði

Það er gaman að leika sér með mismunandi líkjöra fyrir Espresso Martini drykk. Hér er ég búin að blanda súkkulaðilíkjör og smá sýrópi saman við kaffi og vodka og útkoman er æðisleg!

Espresso martini uppskrift

Espresso martini með súkkulaðikeim

Uppskrift dugar í 2 glös

  • 100 ml Tobago Gold súkkulaði/romm líkjör
  • 60 ml vodka
  • 120 ml espresso kaffi kalt
  • 1 tsk. hlynsýróp
  • 1 lúka af klökum
  1. Setjið allt í hristara og hristið vel þar til froða myndast í hristaranum.
  2. Hellið í gegnum sigti/sigtappa á hristaranum í tvö glös.
  3. Skreytið með því að sigta smá bökunarkakó yfir og nokkrum kaffibaunum.
súkkulaðilíkjör í espresso martini

Súpereinfaldur og fljótlegur drykkur sem allir munu elska!

Einfaldur kokteill

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun