Ef þetta er ekki ekta kósýmatur þá veit ég ekki hvað!

Ég var að prófa gnocchi í fyrsta skipti og ætla ég alveg að segja að ég var smá skeptísk á þetta í upphafi þar sem þetta er aðeins önnur áferð en á venjulegu pasta. Gnocchi er þéttara í sér og stífara undir tönn en almáttugur þessi baka var undursamleg og virkilega gaman að prófa að breyta aðeins út af vananum með hefðbundið pasta!

Mmmm……

Gnocchi baka
Fyrir 4-6 manns
- 3 kjúklingabringur frá Rose Poultry
- 300 g frosið rósakál
- 200 g kastaníusveppir
- 3 hvítlauksrif
- 1 pakki DeCecco Gnocchi (500g)
- 350 ml rjómi
- 200 g Philadelpia rjómaostur
- 100 g rifinn Primadonna/Grettir ostur
- Ólífuolía til steikingar
- Sítrónusneiðar til skrauts
- Smjör til steikingar
- Salt, pipar, hvítlauksduft, kjúklingakrydd, cheyenne pipar
- Hitið ofninn í 180°C.
- Skerið kjúklingabringurnar í tvennt, langsum svo úr verði 6 einingar.
- Sjóðið rósakálið í 8 mínútur og hellið í sigti, leyfið vatninu að leka vel af.
- Steikið kjúklinginn upp úr olíu til að loka bringunum og brúna allar hliðar. Kryddið eftir smekk, leggið í eldfast mót.
- Sneiðið sveppina, bætið smjöri á pönnuna og steikið þá við meðalháan hita og kryddið eftir smekk þar til þeir fara að mýkjast. Setjið þá hvítlaukinn saman við síðustu mínútuna og bætið sveppunum næst í fatið með kjúklingnum.
- Bætið aftur smjöri og olíu á pönnuna og steikið næst rósakálið, kryddið eftir smekk og bætið því síðan við í eldfasta mótið.
- Sjóðið á gnocci á eftir rósakálinu (í 2 mínútur), sigtið vatnið af og bætið næst í eldfasta mótið.
- Næst má gera sósuna með því að hella rjómanum á pönnuna, rífa ostinn og bæta rjómaostinum saman við. Hrærið við meðalháan hita þar til jöfn sósa myndast og kryddið eftir smekk.
- Hellið sósunni yfir allt í fatinu, blandið létt saman, skreytið með sítrónusneiðum og setjið í ofninn í 25 mínútur. Gott er að hafa álpappír yfir fyrstu 15 mínúturnar og taka hann síðan af í lokin.
- Rífið meiri Primadonnu/Gretti ost yfir ef þess er óskað.

Það þarf aðeins að sjóða DeCecco Gnocchi í 2 mínútur og því mæli ég með að þið prófið það í frekari pastagerð! DeCecco Gnocchi fæst í Fjarðarkaup.

Færsla þessi er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.