Það þarf ekki að vera flókið til að vera gott! Ég elska þegar eitthvað svona einfalt slær algjörlega í gegn.

Það tekur enga stund að smella í þessa dásemd og til þess að flýta enn frekar fyrir getið þið keypt niðurskorinn silung/lax.

Ég er alltaf hrifnari af reyktum silungi/bleikju en laxi en hvorutveggja myndi sóma sér vel á þessari sneið.

Silungssneiðar
Uppskrift dugar í 6 sneiðar
- 6 fjórðungar af flatköku
- Um 100 g Philadelphia rjómaostur með graslauk
- 200 g reyktur silungur/bleikja
- 6 agúrkusneiðar (þunnar)
- Dill
- Svartur pipar
- Smyrjið hverja flatkökusneið með vænu lagi af rjómaosti.
- Skerið silunginn í þunnar sneiðar og skiptið á milli sneiðanna.
- Skreytið með agúrku og dilli.

Rjómaostur með lauk fullkomnar þetta síðan allt saman!

Mmmm…..

Ískalt hvítvín og silungssneiðar eru hinn fullkomni forréttur, smáréttur eða hvað sem ykkur dettur í hug!

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.