Það er alltaf góður tími til þess að baka góðar smákökur! Það þarf alls ekki að bíða til jóla og mér persónulega finnst best að baka eina og eina sort í einu og borða þær jafnóðum!

Súkkulaðibitakökur eru að mínu mati bestar aðeins volgar ennþá með ískaldri mjólk, mmmmm!

Þessar voru æðislegar!

Súkkulaðibitakökur með lakkrískeim
Um 25 stykki
- 130 g smjör við stofuhita
- 80 g sykur
- 120 g púðursykur
- 1 egg
- 2 tsk. vanilludropar
- 130 g hveiti
- 50 g Cadbury bökunarkakó
- 1 tsk. matarsódi
- ½ tsk. salt
- 100 g dökkir súkkulaðidropar
- 100 g Marabou Black Saltlakrits súkkulaði
- Þeytið smjör og báðar tegundir af sykri þar til létt og ljóst.
- Bætið eggi og vanilludropum saman við og þeytið áfram, skafið niður á milli.
- Blandið hveiti, kakó, matarsóda og salti saman í skál og setjið út í smjörblönduna og blandið.
- Saxið Marabou súkkulaðið niður og setjið það ásamt súkkulaðidropunum í deigið í lokin, hrærið örskamma stund.
- Kælið deigið í að minnsta kosti 3 klukkustundir eða yfir nótt, plastið vel áður. Leyfið því síðan að standa við stofuhita í um 15 mínútur áður en þið útbúið kökurnar.
- Hitið ofninn í 175°C og takið um 2 msk. af deigi fyrir hverja kúlu, rúllið saman og raðið á bökunarplötu.
- Bakið í 13-15 mínútur og kælið á kæligrind.

Marabou lakkrís súkkulaðið gaf þeim dásamlegan lakkrískeim, nammi namm! Þetta súkkulaði fæst meðal annars í Hagkaup, Fjarðarkaup og IKEA.

Namm!

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.